Úr skólalífinu


 

Skólaárið 2007-2008
Haust

Stóra upplestrarkeppnin
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk 2007 - 2008 fór fram í Félagsheimili Seltjarnarness miðvikudaginn 2. apríl. Nemendur úr Grunnskóla Seltjarnarness og grunnskólum í Garðabæ lásu brot úr skáldverki eftir Jón Sveinsson og ljóð eftir Stein Steinarr auk ljóða er þátttakendur völdu sjálfir.

Rakel Björk Björnsdóttir frá Hofsstaðaskóla var í öðru sæti, Halldór Kári Sigurðarson Flataskóla í fyrsta sæti, og Friðrik Árni Halldórsson frá Valhúsaskóla í þriðja sæti. Veitt voru aukaverðlaun fyrir vel lesin ljóð sem Karólína Jóhannesdóttir frá Sjálandsskóla hlaut.
Auk Rakelar Bjarkar kepptu þær Agnes Alda Magnúsdóttir og Unnur Lára Hjálmarsdóttir fyrir hönd Hofsstaðaskóla. Þær stóðu sig allar frábærlega.
Á hátíðina mættu yfir hundrað gestir en auk upplestrar buðu skólarnir upp á fjölbreytt skemmtiatriði. Hljómsveitin Fönk-sveinar frá Valhúsaskóla lék nokkur lög við upphaf hátíðarinnar, en kórsöngur frá Hofsstaðaskóla, píanóleikur frá Sjálandsskóla og dansatriði frá Flataskóla voru á milli þess sem lesið var.

Íslensku menntaverðlaunin
Í vor verða íslensku menntaverðlaunin afhent í fjórða sinn. Hver og einn getur sent inn sínar tilnefningar. Flestir hafa skoðanir á því hvað sé góður kennari, frábært námsefni ellegar góður skóli. Markmiðið með afhendingu íslensku menntaverðlaunanna er að vekja athygli á því sem vel er gert.
>>sjá nánar

Skemmtun á sal -Ho,ho, ho we say hey, hey, hey
Föstudaginn 4. apríl sáu nemendur í 5. G.P. um að skemmta nemendum í eldri deild skólans.
Krakkarnir fór á kostum þegar þau settu upp Laugardagslögin með tilheyrandi viðtölum, söng, leik og dansi. Góður endir á góðri viku í Hofsstaðaskóla.
>>Myndir

Heimsóknir leikskólabarna
Þessa dagana hafa verðandi 1. bekkingar verið að heimsækja Hofsstaðaskóla. Í heimsókninni hafa eldri nemendur aðstoðað við að taka á móti krökkunum og sýnt þeim skólann og lesið fyrir þá á bókasafninu. Vikurnar 7. - 11. og 14. - 18. apríl koma nemendur í svokallaðan vorskóla en þá taka þeir þátt í skólastarfi með 1. bekkingum, borða með þeim nesti og fara í frímínútur. Margir eiga ánægjulega endurfundi við vini af leikskólanum og nágranna sem væntanlega samnemendur.
Við hlökkum til að fá þessa fínu krakka til okkar í skólann í haust.
>>Myndir

Umgöngumst náttúruna af virðingu
3.RS fór út og týndi greinar í beðum í og við skólalóðina. Mikið er af brotnum og skemmdum trjám eftir ágang nemenda og eru foreldrar hvattir til að ræða við börn sín um hvernig við umgöngumst náttúruna af virðingu.

Sýning um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi
Síðastliðinn mánuð hafa nemendur í Hofsstaðaskóla séð sýningu um líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi. Krakkarnir í hverfinu, er leikþáttur þar sem brúður eru notaðar til að tala við börn um hluti sem skipta börn máli. Krakkarnir í hverfinu, eða The kids on the block eins og verkefnið heitir á frummálinu, kemur frá Maryland í Bandaríkjunum. Krakkarnir í hverfinu eru stutt fræðslutengd leikrit þar sem leikbrúður eru notaðar til að fræða börn um mál sem koma upp í samfélaginu.
Með leikþætti um ofbeldi og kynferðislegt ofbeldi eru brúður sem tala við og taka við spurningum frá börnum um þennan málaflokk. Brúður sem eru eins og börnin og tala eins og börnin geta oft náð betur til þeirra en fullorðnir. Sálfræðingur, félagsráðgjafi eða námsráðgjafi er viðstaddur hverja sýningu .
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um sýninguna á heimasíðu Blátt www.blattafram.is

Nokkur fyrirtæki styrktu þetta framtak til að mynda Byko sem styrkti fræðsluna í öllum skólum í Garðabæ. En önnur fyrirtæki lögðu einnig hönd á plóg, Wurth, Stjarnan, SG veitingar, Vistor og GH heildverslun. Viljum við þakka þessum fyrirtækjum fyrir ómetanlegan stuðning.

Skólahátíð - stóra upplestrarkeppnin
Miðvikudaginn 12. mars var haldin Skólahátíð Hofsstaðaskóla þar sem valdir voru þrír fulltrúar skólans til að lesa á Héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar.
Tólf nemendur úr 7. bekkjum lásu stuttan texta og ljóð og stóðu sig mjög vel. Dómnefndinni var því nokkur vandi á höndum.  Eftirfarandi nemendur verða  fulltrúar skólans að þessu sinni; Kristín Bu 7. MG, Rakel Björk Björnsdóttir 7. MG og Unnur Lára Hjálmarsdóttir 7. ÓP. Allir þátttakendur fengu bókagjöf frá skólanum í viðurkenningaskyni.
Þessar stúlkur taka þátt í Héraðshátíðinni sem að þessu sinni verður haldin miðvikudaginn 2. apríl n.k. kl. 17-19 í Félagsheimili Seltjarnarness þar sem auk okkar verða fulltrúar frá Flataskóla og Sjálandsskóla í Garðabæ svo og frá Grunnskólanum á Seltjarnarnesi.
>>Myndir frá skólahátíð

Börn hjálpa börnum
Í febrúarmánuði tóku nemendur í 4. bekk þátt í verkefninu Börn hjálpa börnum með því að ganga í hús í nágrenni skólans og safna fyrir ABC barnahjálp. Þau stóðu sig frábærlega vel og söfnuðu 110.963,- krónum. Við erum afar stolt af okkar nemendum og hve dugleg þau voru að leggja góðu málefni lið. Meira um söfnunina á www.abc.is
>>Sjá nánar um söfnunina hér

Virðing og umhyggja
Foreldrafélags skólans býður alla sem koma að uppeldi barna velkomna í safnaðarheimili Vídalínskirkju nk. fimmtudagskvöld 27. mars kl. 20:00-21:30 til að hlýða á fróðleiksmola dr. Sigrúnar Aðalbjarnardóttur og Hrundar Þórarinsdóttur um virðingu og umhyggju í garð barna. Þessar ágætu konur munu deila með fundargestum ýmsum fróðleik í erindum sínum, en því næst munu þær, ásamt ýmsum aðilum sem tengjast forvarnamálum í Garðabæ, sitja fyrir svörum gesta. Fundarstjóri er Ragný Þóra Guðjohnsen, formaður forvarnanefndar. Foreldrafélög grunnskólanna í Garðabæ standa sameiginlega að þessum fræðslufundi.
>>Auglýsing pdf

Gulur dagur
Föstudaginn 14. mars verður gulur dagur í skólanum. Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að koma í einhverju gulu eða með eitthvað gult í skólann þann dag.Foreldrar verðandi 1. bekkinga -Opið hús
Miðvikudaginn 5. mars frá kl. 10:00-11:00 og föstudaginn 7. mars frá kl. 8:30-9:30 verður opið hús fyrir foreldra verðandi 1. bekkinga sem vilja kynna sér skólann og skólastarfið. Tekið verður á móti áhugasömum á skrifstofu skólans.

Hrókurinn kemur færandi hendi
Nemendur í 4. bekk fengu góðan gest frá skákfélaginu Hróknum. Nemendur fengu allir bókina Skák og mát að gjöf.
>>Nánar

Lífshlaupið,  Þín heilsa -Þín skemmtun
Lífhlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ sem höfðar til allra aldurshópa. Landsmenn eru hvattir til þess að huga að sinni daglegu hreyfingu og auka hana eins og kostur er þ.e. í frítíma, heimilisverkum, vinnu, skóla og við val á ferðamáta. Börnum og unglingum er skv. ráðleggingum lýðheilsustöðvar ráðlagt að hreyfa sig í minnst 60 mínútur á dag og fullorðnum í minnst 30 mínútur. Hægt er að velja um þrjár leiðir til þátttöku:

  • Ef þú ert 16 ára og eldri getur þú tekið þátt í vinnustaðakeppni

  • Ef þú ert 15 ára og yngri getur þú tekið þátt í hvatningarverkefni fyrir grunnskóla

  • Allir geta tekið þátt í einstaklingskeppni þar sem þátttakendur geta skráð sína daglegu hreyfingu allt árið.

Nú stendur yfir skráningarleikur á Rás 2. Meðan á keppninni stendur verður eitt heppið lið frá fyrirtæki og skóla dregið út á hverjum virkum degi og fær það lið sent til sín ávaxtakörfu frá Ávaxtabílnum . Hvatningarleikurinn fyrir grunnskóla stendur yfir frá 4. mars - 17. mars.
Nú þegar hefur eitt lið úr Hofsstaðaskóla unnið en það er 5. Ó.H.G. Til hamingju Ólöf Harpa og nemendur í 5. Ó.H.G.!!!

Hofsstaðaskóli hefur einnig skráð sig til þátttöku í vinnustaðakeppnina í Lífshlaupinu og hafa starfsmenn skipað sér í lið sem ætla að stefna ótrauð að því að hljóta einhverja af þeim viðurkenningum sem í boði eru. Á vef Lífshlaupsins má kynna sér verkefnið nánar og skrá sig til þátttökur!

Foreldrum verðandi 1. bekkinga boðið á kynningarfund
Miðvikudaginn 27. febrúar var haldinn kynningarfundur fyrir foreldra verðandi 1. bekkinga. Í Garðabæ geta foreldrar valið um fimm ólíka skóla sem innrita börn í fyrsta bekk. Garðabær rekur þrjá þeirra: Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla. Hinir tveir eru einkareknir en þeir eru Barnaskóli Hjallastefnunnar og Alþjóðaskólinn. Börn úr Garðabæ borga engin skólagjöld þar. Hægt er að nálgast kynningar skólanna á vef Garðabæjar.
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á að koma í heimsókn og kynna sér skólastarfið hjá okkur í Hofsstaðaskóla að hafa samband við Margréti Harðardóttur, skólastjóra, Hafdísi Kristmundsdóttur, aðstoðarskólastjóra eða Arnheiði Ösp Hjálmarsdóttur deildarstjóra yngri deildar.
>>Kynning Hofsstaðaskóla

Góðir gestir af Hæðarbóli
Þriðjudaginn 26. febrúar var leikskólanum Hæðabóli boðið í mat með 1.bekk. Það var frábært að fá krakkana og komu þeir færandi hendi með frumsamið ljóð, óskastein og teiknaðar myndir. Eins og sjá má á myndunum skemmtu allir sér konunglega.
>Myndir

Risaeðlur-sameiginlegt verkefni í 3. og 4. bekk
Nemendur í 3. og 4. bekk hafa undanfarnar vikur verið að vinna að verkefni um risaeðlur.
Föstudaginn 22. febrúar var haldin sýning fyrir foreldra og aðstandendur þar sem afrakstur vinnunnar var sýndur. Nemendur hafa skapað risaeðluveröld á ganginum í skólanum og þar má sjá allar tegundir eðla, gróður og umhverfi eins og það var á risaeðlutímanum. Einnig er þar af finna ýmsan fróðleik um risaeðlur og risaeðlutímabilið.Voru allir gestir sammála um að vel hefði tekist til og stoltið skein úr hverju andliti þegar gengið var um ganga og afrakstur mikillar vinnu sýndur foreldrum og öðrum aðstandendum.
>>Myndir

Þorrablót 6. bekkingaþorrablót 08 148
Þorrablót 6. bekkinga var haldið í skólanum fimmtudaginn 7. febrúar. Sú hefð hefur skapast í Hofsstaðaskóla að 6. bekkir halda veglegt þorrablót og bjóða foreldrum sínum til kræsinga og fjölbreyttrar skemmtidagskrár. Undirbúningur stendur lengi yfir og er meðal annars fólginn í því að nemendur læra og æfa dans í íþróttatímum. Þeir læra og æfa þorralög, búa til skreytingar í myndmennt, semja og æfa skemmtiatriði ofl. Nemendur sjá um að skreyta salinn og leggja á borð og á þorrablótinu eru nemendur í aðalhlutverki hvort heldur er á sviði eða við þjónustu bæði fyrir og eftir borðhald.
>>Myndir þorrablót 7. feb. 08

Öskudagurinn
Það er mikið líf og fjör hjá nemendum Hofsstaðaskóla á öskudaginn. Krakkarnir mættu í fjölbreyttum og skemmtilegum búningum í öllum regnboganslitum í skólann. Þar hófst dagurinn á samsöng en síðan var margt í boði til afþreyingar. Þeim sem vilja býðst að taka lagið fyrir nammidrottningu og nammikóng og freista þess að fá sælgæti að launum. Einnig er í boði að: Sauma öskupoka, búa til hatta, grímur, tefla, spila, fara í tölvur o.fl. Síðast en ekki síst þá sér diskótekið Dísa um stuðið í salnum þar sem dansað er af innlifun.
>>Myndir Öskudagur I
>>Myndir Öskudagur II
>>Myndir Öskudgur III
>>Myndir Öskudgur IV

Þorrablót 6. bekkinga
Árlegt þorrablót 6. bekkinga í Hofsstaðaskóla verður fimmtudaginn 7. febrúar. Þá bjóða nemendur foreldrum sínum til skemmtunar þar sem þeir bjóða upp á skemmtiatriði, þorramat og að lokum dansa allir gömludansana. Nemendur og kennarar hafa unnið hörðum höndum við undirbúning undanfarna daga og æfingar á skemmidagskrá. Lítið á nokkrar myndir af nemendum við æfingar á gömlu dönsunum í íþróttahúsinu Mýrinni.

Reykir í Hrútafirði
Nú er komið að hápunkti þessarar annar hjá nemendum í 7. bekk en það er ferðin í skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði. Það eru þau: Lilja Karlsdóttir umsjónarkennari 7.L.K, Ólafur Pétursson umsjónarkennari 7. Ó.P. og Elva Björk Ágústsdóttir námsráðgjafi sem mun hafa umsjón með 7. M.G. Okkur gefst tækifæri til að til að fylgjast með hvað þau taka sér fyrir hendur á vefsíðunni http://www.123.is/reykir08

Öskudagur 6. febrúar 2008
Á öskudag ætlum við að eiga skemmtilega stund saman, starfsfólk og nemendur. Skólastarf hefst
kl. 8:30 og lýkur kl. 12:15
að loknum hádegismat og telst hann því skertur skóladagur. Ekki er gert ráð fyrir hefðbundinni stundatöflu. Nemendur hafa með sér venjulegt nesti í morgunhressingu og í hádeginu (þeir sem ekki eru í mataráskrift). Mælst er til að nemendur mæti í einhvers konar búningi.
Fjöldasöngur verður í miðrými fyrir alla nemendur kl. 9:00.

Diskótekið Dísa í sal á eftirfarandi tímum:

  • Kl. 10:00 – 10:40
    1. – 3. bekkur

  • Kl. 11:00 – 11:50
    4. – 6. bekkur

  • Sælgætiskóngur og -drottningar verða í skólanum þar sem einstaklingar eða hópar geta komið og flutt skemmtiefni og fengið sleikjó að launum.

  • Ýmis verkefni verða í boði s.s. öskupokasaumur, andlitsmálun, grímugerð, hattagerð, spil og tafl.

Foreldrar eru velkomnir í skólann.

Tómstundaheimili: Nemendur sem eru alla jafnan í tómstundaheimilinu eftir skóla geta farið þangað kl. 12:15 þegar skóla lýkur.

Vegleg gjöf frá Þjóðleikhúsinu
Skilaboðaskjóðan eftir Þorvald Þorsteinsson er barnasýning leikársins á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu.
Þjóðleikhúsið sendi öllum grunnskólum landsins gjöf sem inniheldur hljómdisk með tónlistinni úr Skilaboðaskjóðunni eftir Þorvald Þorsteinsson og Jóhann G. Jóhannsson, píanónótur að tveimur lögum söngleiksins, veggspjald og veglegan fræðslupakka með kennsluhugmyndum og ítarefni um sýninguna.
Fræðsludeild Þjóðleikhússins hefur að markmiði sínu að efla leiklistarlæsi ungs fólks og er þessi gjöf liður í því starfi. Það er von Þjóðleikhúsins að tónlistin og kennsluefnið nýtist í skólastarfinu.

Námsferð að Reykjum í Hrútafirði
Vikuna 4. - 8. febrúar fara nemendur í 7. bekk í skólabúðir að Reykjum í Hrútafirði. Mikil tilhlökkun ríkir í hópnum og eigum við von á að geta fylgst með fréttum og myndum frá ferðinni í gegnum bloggsíðu. Nánar auglýst síðar.

100 daga hátíð hjá 1. bekk
Það var mikið um dýrðir á hundraðasta skóladegi 1. bekkja í dag. Nemendur gerðu hatta, fóru í skrúðgöngu um skólann, heimsóttu skólastjórnendur og litu inn í nokkrar skólastofur. Í tónmennt sungum við nokkur lög og héldum skrúðgöngunni áfram inn í íþróttahús. Þar fórum við í stöðvaleiki og marseruðum. Í lok dagsins gerðu nemendur sín talnabönd sem við munum nota í stærðfræði. Þetta var virkilega skemmtilegur dagur og fór vel fram.
>>Myndir

>>Myndir II

Risaeðlur-skemmtilegt verkefni í 3. og 4. bekk
Nemendur í 3. og 4. bekkjum skólans eru að vinna mjög spennandi verkefni um risaeðlur. Nemendur fara m.a. á Netið og í bækur til að afla sér upplýsinga. Í framhaldinu vinna þau svo fjölbreytt verkefni. Við ætlum að vera dugleg að birta myndir frá vinnu nemendanna.
>>Risaeðlur-myndasafni I
>>Risaeðlur-myndasafn II

>>Risaeðlur-myndasafn III

Litla EM í handknattleik
Laugardaginn 19.janúar tóku nokkrar stúlkur í 6.bekk Hofsstaðskóla þátt í litla EM í handknattleik. Stúlkurnar stóðu sig með prýði og voru skólanum til sóma. Góður liðsandi og jákvæðni einkenndi þennan hóp og það var virkilega gaman að sjá hvernig þær bættu sig með hverjum leik sem þær spiluðu.
Litla EM - skólamóti HSÍ og Kaupþings er fyrir nemendur 6. bekkja. Mótið tókst afar vel, yfir 200 börn víðs vegar af höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í því, fyrir utan þau 600 börn sem tóku þátt í undankeppnunum sem fóru fram á haustmánuðunum.
Alls tóku yfir 80 lið frá yfir 40 skólum (eitt stúkna og eitt drengja lið frá hverjum skóla) þátt í undankeppnunum sem félögin héldu, sem þýðir að yfir 800 börn tóku þátt í mótinu.

Útivist
Það var líf og fjör hjá nemendum á eldra stigi föstudaginn 18. janúar en þá voru þeir í frískandi útivist í síðasta tíma dagsins. Þá var ýmislegt gert eins og sést á myndunum. Því miður var ekki hægt að hnoða snjóinn svo að engin snjóhús, snjókarlar eða kerlingar litlu dagsins ljós á skólalóðinni – kannski síðar!
>>Útivist-myndasafn

Vetrarfrí
Dagana 11.–15. febrúar n.k. er vetrarfrí í grunnskólum Garðabæjar. Tómstundaheimilið verður opið í vetrarfríinu og þarf að sækja sérstaklega um dvöl þar. Umsóknareyðublað hefur verið sent heim til nemenda í 1.–4. bekk. Síðasti dagur skráningar er miðvikudagurinn 30. janúar.

Veðurþema
Nemendur í 1. og 2. bekk eru í veðurþema um þessar mundir. Verkefnið er hluti af þróunarverkefni í þessum árgöngum. Þemavinnan fer fram á 7 mismunandi stöðvum þar sem nemendur læra meðal annars um veðurtákn, sól og skugga, vind og vatn. Sumar stöðvarnar eru útistöðvar og nemendur voru afar ánægðir að fá snjóinn enda skemmtilegt að vera í veðurleikjum í honum.
>>Veðurþema-úti
>>Veðurþema-inni

Kennaranemar á fyrsta ári heimsóttu okkur í nóvember og koma þeir aftur til okkar 25.- 29. febrúar og 27 .- 9. apríl nk.
Tíu kennaranemar á öðru ári í Kennaraháskóla Íslands eru í vettvangsnámi á vorönn í Hofsstaðaskóla. Aðalviðfangsefni þeirra er kennsla yngri barna með áherslu á íslensku. Sl. viku voru nemarnir í áheyrn í 2. og 3. bekk. Frá 3. -14. mars verða þeir í æfingakennslu og
26. mars – 1. apríl nk. aðstoða þeir m.a. kennarana í sömu bekkjum.

Hofsstaðaskóli er heimaskóli KHÍ
Kennaraháskóli Íslands og Hofsstaðaskóli undirrituðu samstarfssamning um menntun kennara í nóvember sl.
Samningurinn felur m.a. í sér samstarf um framkvæmd vettvangsnám og hins vegar væri hann viljayfirlýsing skólanna til þess að skapa möguleika á samstarfi á breiðari grunni, t.d. um samstarf um þróunarverkefni, rannsóknir eða um kennslu faggreina.
Samstarfsskólarnir taka að sér að vera heimaskólar kennaranema við KHÍ, allan námstíma þeirra. Heimaskólar veita ákveðnum fjölda nema aðgang að skólanum til að vinna þar þau verkefni sem tengjast vettvangi. Um getur verið að ræða æfingakennslu, kynnisheimsóknir, þátttöku í undirbúningi og framkvæmd kennslu, athuganir á skólastarfi o.fl. Samstarfið er fyrsta skrefið í að þróa frekari tengsl Kennaraháskólans við grunn- og leikskóla.

Miðsvetrarpróf 8. - 25. janúar
Nemendur 4. - 7. bekkjar munu taka miðsvetrarpróf á tímabilinu 8.-25. janúar. 
Sjá nánar hér:
Miðsvetrarpróf.

Verðbreytingar á skólamáltíðum
Í samningi milli Skólamatar og Garðabæjar kemur fram að verð á skólamáltíðum skuli taka breytingum samkvæmt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og skal endurskoðað 1.ágúst og 15.desember ár hvert.
Samkvæmt því breytist verð fyrir fasta áskrift alla daga í krónur 390 og fyrir fjórar máltíðir eða færri krónur
398. Breytingar þessar taka gildi nú um áramótin.

 

Vísindamaður að láni
Í síðustu viku fengu nemendur úr 3. og 4. bekk góðan gest í heimsókn en það var vísindamaður að nafni Lovísa sem var með fróðlega og skemmtilega kynningu á steingervingum og risaeðlum. Heimsóknin tengist þemavinnu nemenda um risaeðlur. Það mátti greinilega sjá að áhugi nemenda á risaeðlum er mikill og það verður spennandi að sjá afrakstur nemenda að þema loknu.
>>Myndir

 
Námstæknifræðsla fyrir foreldra og nemendur í 5. bekk  
Undanfarnar vikur hafa foreldrar og nemendur í 5. bekk í Hofsstaðaskóla fengið námstæknifræðslu hjá námsráðgjafa.

Foreldrar hafa mætt með börnum sínum og hlýtt á fyrirlestur námsráðgjafa sem fór yfir ýmsa þætti sem geta aukið námsgetu barna og bætt líðan í skóla. Fjallað var um áhuga á námi, skipulag, lestrartækni, glósutækni, próftækni, minnistækni o.fl. Mæting var mjög góð og þökkum við kærlega fyrir þann áhuga sem foreldrar sýna námi barna sinna.

Á myndinni má sjá áhugasama foreldra hlýða á Ólöfu Hörpu, en hún er ein af kennurum 5. bekkjar.

Hér eru fróðlegar upplýsingar um námstækni eftir Sigrúnu Ágústsdóttur sem gagnast öllum sem vilja auka námshæfni sína:

http://www.nams.is/namstaekni/index.htm

Jólaskemmtanir
Jólaskemmtanir yngri og eldri deildar voru fimmtudaginn 20. desember. Nemendur í 4. bekk fluttu jólaguðspjallið en ýmis önnur atriði voru á dagskrá; leikrit, dans, myndband og fleira. Skemmtanirnar tókust vel og nemendur stóðu sig með miklum sóma. Hér fyrir neðan má nálgast myndir
>>Jólaskemmtun yngri deildar I
>>Jólaskemmtun yngri deildar II

>>Jólaball yngri
>>Jólaskemmtun eldri I
>>Jólaskemmtun eldri II

Aðventumessa
Nemendur Hofsstaðaskóla voru í aðalhlutverki í aðventumessu í Vídalínskirkju sunnudaginn 9. desember. Boðið var upp á söng og hljóðfæraleik og lesin voru frumsamin ljóð og sögur. Börnin stóðu sig með afbrigðum vel eins og þeirra er vona og vísa. Fullt var út úr dyrum í kirkjunni, en það er mjög gaman að sjá hvað foreldrar taka virkan átt í starfi barna sinna.
Þetta er ein af þessum skemmtilegum hefðum í Hofsstaðaskóla en hún hefur verið við lýði í um 20 ár.

>Myndir

 

Jólamatur nemenda og starfsfólks
Nemendur og starfsfólk Hofsstaðaskóla borðuðu saman jólamat í mötuneyti nemenda í gær. Boðið var upp á hangikjöt með kartöflujafningi, rauðkáli og baunum. Salurinn var skreyttur, kveikt var á kertum og jólatónlist spiluð. Nemendur og starfsfólk sátu í rólegheitum og spjölluðu um jólasiði og hefðir hjá fjölskyldunni. Maturinn bragðaðist vel og margir nemendur fengu sér ábót. Þetta var kærkomin tilbreyting í skólastarfinu í skammdeginu, sem vonandi verður að hefð hér í Hofsstaðaskóla.
>>Myndir

 

Systkinin KK og Ellen heimsækja Hofsstaðaskóla
Í síðustu viku komu systkinin Ellen og KK í heimsókn og héldu tónleika fyrir yngri nemendur og starfsfólk skólans. Efnisskráin var mjög fjölbreytt og sungu nemendur með listamönnunum þegar það átti við. Koma Ellenar og KK tengdist verkefninu Tónlist fyrir alla. Næstkomandi föstudag þann 14. desember munu þau koma aftur og syngja fyrir eldri nemendur skólans. Við þökkum systkinunum kærlega fyrir komuna.
>>Skoða myndir

Rauður dagur
Það var rauður blær yfir Hofsstaðaskóla síðasta föstudag en þá var rauður dagur í skólanum. Nemendur sem og starfsfólk var hvatt til að koma í einhverju rauðu eða bera eitthvað rautt. Skemmtileg stemning myndaðist og gaman að sjá hve margir eiga eitthvað rautt!
>>skoða myndir

Jólasöngur
Í síðustu viku komu krakkarnir í 1. og 2. bekk saman og sungu jólalög undir stjórn Jóns Bjarna tónmenntakennara. Þetta var hátíðleg og skemmtileg stund.
>>skoða myndir

Ljóða og smásögusamkeppni
Efnt var til ljóða- og smásögusamkeppni í tengslum við jólaguðsþjónustuna sem nemendur Hofsstaðaskóla taka þátt í sunnudaginn 9. desember kl. 11.


Hlutu viðurkenningu í ljóða- og smásögusamkeppninni fyrir jólaguðsþjónustuna.
Aldís Lilja 7-LK, Þóranna Gunný 6-BV, Sara Líf 5-HK, Bryndís Rós 5-Ó.H.G. og Andrea Urður 6-BJ

 

 

Skólastarf í desember 2007
Jólaguðsþjónusta - sunnudaginn 9. desember kl. 11:00
Jólaguðsþjónusta í Vídalínskirkju með þátttöku barna úr Hofsstaðaskóla. Nemendur flytja efni tengt jólunum. Hópur nemenda leiðir söng undir stjórn Unnar Þorgeirsdóttur.

Fjölmennum í kirkjuna - kirkjuferðin er fjölskylduferð

Laufabrauðsdagur foreldrafélagsins
Á laugardaginn var hinn árlegi laufabrauðsdagur foreldrafélagsins. Þá komu saman nemendur, fjölskyldur þeirra og starfsmenn skólans skáru og steiktu yfir 1.100 laufabrauð. Stemmningin var góð og allir komust í jólaskap.
>>Sjá myndir

 

Endurskinsmerki að gjöf
Nemendur og starfsfólk Hofsstaðaskóla hafa í tilefni af 30 ára afmælinu, fengið að gjöf endurskinsmerki með merki skólans. Þau eru kostuð af nokkrum velunnurum Hofsstaðaskóla.
Við hvetjum alla til þess að líma merkin á fatnað og/eða skólatöskur barnanna nú þegar mikilvægt er að allir sjáist vel í umferðinni og vetrarmyrkrinu.
 

Nemendur í 2. E.H. stoltir með merkin sín.
 

Slökkviliðið heimsækir nemendur í 3. bekk
Mánudaginn 26. nóvember kom slökkviliðið í heimsókn í 3. bekk. Nemendur fengur að skoða sjúkra- og slökkviliðsbílinn og allan þann búnað sem fylgir. Slökkviliðsmennirnir fræddu nemendur einnig um eldvarnir og afhentu þeim bækling og leystu þá út með gjöfum. Nemendurnir voru sérlega áhugasamir og hlustuðu vel.
>>Slökkviliðið í heimsókn I
>>Slökkviliðið í heimsókn II
 
Góðir gestir úr Heiðarskóla
Föstudaginn 23. nóvember fengum við góða gesti úr Heiðarskóla í Reykjanesbæ. Þeim var boðið í heimsókn í nokkra bekki, við gátum stolt sýnt þeim mörg af þeim listaverkum sem eru afrakstur þemadaga í gegnum tíðina og verk yngstu nemenda skólans. Gestunum leist býsna vel á skólann og skólastarfið. Þökkum þeim kærlega fyrir að heimsækja okkur. Ávallt velkomin.

Laufabrauðsdagur í Hofsstaðaskóla
Laugardaginn 24. nóvember n.k. kl. 11-14 mun Foreldrafélag Hofsstaðaskóla standa fyrir laufabrauðsútskurði og steikingu í skólanum líkt og áður. Gestir kaupa laufabrauð á staðnum sem tilbúið er til útskurðar, skera út í salnum og koma með fjögur brauð í senn til steikingar í heimilisfræðistofunni. Seld verða 8 laufabrauð saman á 500 krónur og athugið að aðeins er hægt að taka við peningum.
Allir velkomnir, nemendur, foreldrar, systkini, afar og ömmur, frænkur og frændur, vinir og að sjálfsögðu starfsfólk skólans.

Afmælishátíð skólans 16. nóvember
Nemendur og starfsfólk skólans undirbjó veislu vegna 30 ára afmælis skólans af miklum kappi alla síðustu viku. Þegar gengið er um skólann má sjá verkefni nemenda t.d. um framtíðarskólann, „Kristrúnu í gegnum tíðina“, súlurit yfir afmælisdaga nemenda og starfsmanna, afmælispakka og skreytingar af ýmsum toga svo eitthvað sé nefnt. Textíl- og smíðakennari, ásamt nemendum, unnu glæsilegt listaverk sem hangir í sal skólans, en það er afmælisgjöf þeirra til skólans. Einnig hangir veglegur órói, sem unnin var sem hópverkefni í myndmennt, í salnum.
Föstudaginn 16. nóvember var vegleg afmælishátíð í skólanum. Dagskráin á sal hófst með því að sýnt var myndband þar sem saga skólans var kynnt í máli og myndum. Að því loknu var nemendasýning en þemað var tónlist og tíska síðustu þriggja áratuga. Yngstu nemendurnir bjuggu til hljóðfæri og voru með tónlistar- og dansatriði undir stjórn eldri nemenda. Í Hofsstaðaskóla æfa margir nemendur fimleika en þeir sýndu okkur fimi sína við mikinn fögnuð áhorfenda. Einnig lék nemandi „Hann á afmæli í dag“ á harmóníku. Dagskráin tókst afskaplega vel og nemendur tóku vel eftir og voru í alla staði til fyrirmyndar.
Nemendur borðuðu hádegismatinn sinn í bekkjarstofum, en boðið var upp á langloku, djús og múffuköku í tilefni dagsins.
Nemendur og starfsfólk söfnuðust síðan saman á lóð skólans kl. 13:30 en þá veittu nemendur úr umhverfisnefnd skólans Grænfánanum viðtöku. Grænfáninn er tákn um góða fræðslu og umhverfisstefnu skólans, en skólinn hefur um þriggja ára skeið verið skóli á grænni grein undir dyggri stjórn Kristrúnar Sigurðardóttur deildarstjóra eldri deilda. Fulltrúar Landverndar afhentu Kristrúnu viðurkenningarskjal í tilefni af áfanganum.
Grænfáninn var dreginn að húni við hlið íslenska fánans og fána skólans sem er afmælisgjöf frá foreldrafélaginu.
Afmælishátíð skólans fyrir foreldra, nemendur og aðra velunnara skólans hófst kl. 14:15.
>>Lesa meira og skoða ljósmyndasögur og myndir

 

Hofsstaðaskóli 30 ára
2. K.S. Skólaárið 1977-1978
Aftari röð frá vinstri: Sigrún H. Kristjánsdóttir, Halldóra G. Matthíasdóttir, Ingibjörg Hauksdóttir, Guðrún S. Fransdóttir, Arnar F. Jónsson, Þóroddur Elmar Jónsson, Matthías R. Gíslason, Heimir Erlingsson.
Fremri röð frá vinstri: Pálmi Þ. Gunnarsson, Steindór Benediksson, Hörður Arnarson, Eiríkur Benediktsson, Ólöf Erna Leifsdóttir, Ólöf Hanna Óladóttir, Anna Kjartansdóttir, Sigríður Brynjólfsdóttir.
Kennari: Kristrún Sigurðardóttir

Þemadagar vikuna 6. - 9. nóvember
Vikuna 6. - 9. nóvember eru þemadagar í skólanum. Yfirskrift þemadaga er: Við undirbúum afmæli! Hofsstaðaskóli heldur upp á 30 ára afmæli sitt í ár en afmælisárið hófst formlega þann 1. september með skrúðgöngu og skemmtun í skólanum.
Það verður að sjálfsögðu líf og fjör á þemadögum því nemendur og starfsfólk skólans mun bretta upp ermarnar og undirbúa afmælisveislu sem fram fer föstudaginn 16. nóvember. Þá er öllum nemendum, aðstandendum og velunnurum skólans boðið að koma í heimsókn og rifja upp gamlar minningar og gleðjast. Dagskráin þann dag hefst með afhendingu Grænfánans kl: 13:30, en skólinn hefur unnið markvisst að því að öðlast hann síðastliðin ár. Síðan gefst fólki tækifæri til að ganga um skólann og skoða afrakstur þemadaga, ýmis skemmtiatriði verða á sviði og myndasýningar verða á göngum og í stofum víðs vegar um skólann.
Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Öruggar leiðir - Kort með gönguleiðum afhent grunnskólabörnum í Garðabæ
Nemendur fá heim með sér bæklinginn Öruggar leiðir, um bæinn okkar. Bæklingurinn inniheldur helstu gönguleiðir í Garðabæ til leiðbeiningar fyrir foreldra og skólabörn.
>>sjá nánar

Afmælisveisla - Opið hús
Föstudaginn 16. nóvember verður afmælisveisla í Hofsstaðaskóla – opið hús. Tilefnið er 30 ára afmæli skólans en við munum fagna þessum merku tímamótum á fjölbreyttan hátt allt skólaárið.
     Þemadagar stóðu yfir vikuna 6. – 9. nóvember. Þá var afmælisveislan undirbúin. Nemendur unnu saman í hópum, þvert á árganga, að verkefnum tengdum hátíðinni og verður afraksturinn til sýnis í afmælisveislunni. Dagskráin hefst kl. 13:30 en þá munu fulltrúar frá Landvernd afhenda skólanum Grænfánann sem hann hefur markvisst unnið að því að öðlast. Fáninn verður afhentur við hátíðalega athöfn og dreginn að húni fyrir utan skólann. Að því loknu er skóladegi nemenda lokið og gestum gefst færi á að ganga um skólann, skoða verk nemenda og fylgjast með skemmtiatriðum á sal.
Á opna húsinu verður starfrækt kaffihús sem nemendur undirbjuggu á þemadögum en þar verður selt kaffi, skúffukökur og tebollur sem nemendur sáu um að baka.
     Við erum mjög stolt af nemendum skólans sem unnu mjög gott starf á þemadögum. Eldri nemendur skólans gerðust leiðbeinendur og aðstoðuðu yngri nemendur í hópastarfinu af miklum myndarskap.

Dagskrá:
13:30
Ávarp skólastjóra Margrétar Harðardóttur
Ávarp Páll Hilmarsson
Ávarp fulltrúa Landverndar
Nemendur úr umhverfisnefnd draga fánann að húni
14:15
Tískusýning (sýndur verður klæðnaður frá 1977-2007)
14:30
Tónlistaratriði (ungir nemendur leika á hljóðfæri sem þeir gerðu sjálfir)
14:45
Fimleikaatriði
15:15
Þemadagar í máli og myndum (myndband sem nemendur unnu)

Náttúran og nærumhverfið - umhverfisdagur í Garðabæ
Föstudaginn 2. nóvember verður opin ráðstefna um náttúru, útvist og útikennslu. Ráðstefnan er í Tónlistarskólanum í Garðabæ kl. 13 -17 og er frír aðgangur.
Á innitorgi Garðatorgi 7 sýna grunnskólanemar verkefni haustsins frá umhverfisfræðslu og útikennslu. Einnig verður kynning á ýmsum umhverfisverkefnum, t.d. vistvernd í verki og grænum tunnum.
>>Sjá nánar

Netnotkun barna
Að gefnu tilefni finnst okkur ástæða til að hvetja foreldra til að vera vakandi yfir netnotkun barna sinna. Hröð þróun nýrrar tækni er eðlilegur hlutur í huga barna okkar og þau eru mun fljótari að tileinka sér nýja möguleika en margir foreldrar átta sig á. Þetta nýja umhverfi er fjölbreytt en það hefur bæði góðar og slæmar hliðar. Þess vegna er nauðsynlegt fyrir foreldra að fylgja börnum sínum eftir; njóta með þeim þess skemmtilega og góða sem Netheimar bjóða upp á, en kenna þeim um leið að forðast hætturnar. Hvetjum börnin okkar til öruggrar og ábyrgrar notkunar á Netinu og tengdum miðlum. Hvetjum þau til að nota þessa nýju miðla á öruggan, jákvæðan, skemmtilegan og fræðandi hátt.
Að þessu sögðu er það einkum tvennt sem við viljum koma á framfæri að þessu sinni:
Ræðið við börnin ykkar um hvað þau eru að gera á Netinu, hvaða síður eru þau að heimsækja, hvað er áhugavert og spennandi.
Fylgist með því við hverja þau eru að spjalla á MSN og ýmsum spjallþráðum á Netinu- Hverja eru þau með á tenglaskrá sinni? Þekkja þau raunverulega það fólk? Þekkið þið það fólk?

      Verkefni:
             · Farið yfir Netheilræðin 10 með börnunum
             · Farið yfir SAFT-lykilorðin
             · Gerið ráðstafanir varðandi MSN-fylgist með spjallinu og hvaða tengla börnin eru með

Að lokum:
Við segjum eða gerum ekkert á Netinu sem við ekki gætum sagt eða gert í eigin persónu!!!
Það er hægt að rekja skilaboð og sendingar til þeirrar tölvu sem sent er úr!

 

   
Hrekkjavaka
7. bekkir Hofsstaðaskóla buðu Flataskóla og Sjálandsskóla á hrekkjavökudiskótek þriðjudaginn 30. október. Diskótekið er endapunktur á hrekkjavökuþema sem nemendur hafa verið að vinna við í tengslum við enskukennslu í skólanum.
Nonni frá Diskótekinu Dísa spilaði undir dansi og stjórnaði hringdönsum og fjöri. Nemendur Hofsstaðaskóla buðu gestum sínum upp á draugalegar veitingar og var draugahús í boði fyrir þá sem þorðu.
Allir mættu í búningum og voru flestir búnir að leggja hart að sér við að búa til hin mismunandi gervi. Í sumum tilfellum hefði alveg mátt ruglast á því hvort um væri að ræða draug eða mannveru en til þess er leikurinn einmitt gerður.
Þær Rakel, Hildur, Unnur og Agnes úr 7-ÓP fengu viðurkenningu fyrir flottustu búningana. Styrkár úr Sjálandsskóla fékk viðurkenningu fyrir hræðilegasta búninginn, Guðmundur úr Flataskóla fyrir frumlegasta búninginn og Benney og Fanný úr Flataskóla fengu viðurkenningu fyrir bestu hugmyndina.
 


>>Undirbúningur hrekkjavöku I
>>Undirbúningur hrekkjavöku II
>>Hrekkjavökuball

 
 
Ratleikur í 5. – 7. bekk
Föstudaginn 26. október tóku allir nemendur í 5. -7. bekk þátt í ratleik á skólalóðinni.
>>Myndir

 



 

Skilaboðaskjóðan.
Krakkarnir í 1. bekk fengu góða gesti í heimsókn. Það var hópur nemenda af leikskólanum Hæðarbóli en með þeim í för var stór og mikil skilaboðaskjóða. Í heimsókninni var sungið, borðað nesti, farið í frímínútur og unnið að ýmsum verkefnum í sögurammanum um Skilaboðaskjóðuna. Gangarnir fyrir framan stofurnar eru núna að fyllast af lífi en þar er hægt að sjá tröll, álfa, tré, blóm, dverga o.fl. Heimsókn leikskólans er hluti af þróunarverkefni í 1. og 2. bekk og fellur vel að því að brúa bilið milli skólastiganna.
>>Myndir


 
Alþjóðlegi bangsadagurinn.
 
Alþjóðlegi bangsadagurinn var 27. október og af því tilefni var bangsaþema á skólasafninu í síðustu viku. Á föstudeginum máttu allir nemendur á yngra stigi koma með bangsa í skólann  og í lok dags var slegið upp bangsaballi í salnum. Lokadaginn voru allar stofur fullar af litríkum, stórum og smáum böngsum sem var svo boðið á ball en þar var mikið líf og fjör eins og sést á myndunum.
Myndin hér til hliðar er af fyrsta bangsanum.
>>Myndir
>>Bangsavefur bókasafnsins á Ísafirði

Gleðitilraunir í 5. bekk

Nemendur í nýsköpun voru að gera tilraunir í síðustu viku. Meðal þess sem
þau könnuðu var hvernig hægt væri að koma sér og öðrum í gott skap með
 litlum tilkostnaði. Allt sem þarf er límband og hressir krakkar sem taka sjálfa sig ekki alltof alvarlega. Eins og sjá má á myndinni heppnaðist tilraunin fullkomlega.

Tungumáladagurinn
Evrópski tungumáladagurinn var 26. september. Nemendur í Hofsstaðaskóla bjuggu af því tilefni til laufblöð í öllum regnbogans litum sem minna okkur á að nú er haustið gengið í garð. Hver árgangur fékk sinn lit. Nemendur skrifuðu orð og setningar á ensku og dönsku á laufblöðin sem hanga uppi í miðrými skólans. Í vetur læra allir nemendur í Hofsstaðaskóla ensku, en kennsla í yngri deildum er þróunarverkefni sem styrkt er af menntamálaráðuneyti.
>>Myndir

 

1. verðlaun í nýsköpunarkeppni grunnskólabarna
Nýsköpunarkeppni grunnskólabarna - til hamingju með frábæran árangur:
Afhending verðlauna í Nýsköpunarkeppni grunnskólabarna 2007 fór fram í Grafarvogskirkju sunnudaginn 30. september. Forseti Íslands afhenti verðlaunin. Alls bárust rúmlega 3300 hugmyndir af öllu landinu í keppnina og komust 50 nemendur áfram í vinnusmiðju. Keppt var í 4 flokkum og voru veitt verðlaun fyrir 1. - 3. sæti í hverjum flokki fyrir sig, svo alls 12 nemendur hlutu verðlaun. Tveir nemendur úr Hofsstaðaskóla voru í þessum 50 manna hópi sem kom hugmyndum sínum áfram í vinnusmiðju. Það voru þau Egill Ingi Egilsson í 6.B.J. og Harpa Guðrún Hreinsdóttir 6. B.V. Þetta er annað árið í röð sem nemendur úr Hofsstaðaskóla lenda í fyrsta sæti í þessari keppni. Glæsileg frammistaða! Til hamingju Krakkar! Myndin er af Hörpu Guðrúnu.
>>Myndir

 
Vífilsstaðavatn - Gersemi Garðabæjar
6. bekkingar hafa verið læra um lífríki Vífilsstaðavatns þ.e. í og við vatnið frá því að skólinn hófst. Hluti af því ferli var að fara í útkennslu að Vífilsstaðavatni. Þriðjudaginn 25. september var farið á hjóli að vatninu í sól og blíðu þar sem nemendur unnu í hópum ýmis verkefni. Undir stjórn Bjarna Jónssonar vistfræðings veiddu þeir fiska og söfnuðu sýnum úr Vífilsstaðavatni og Vífilsstaðalæk. Einnig unnu nemendur verkefni undir stjórn kennara þar sem þeir skoðuðu jurtir, fuglalíf og ýmis örnefni í umhverfinu. Sýni voru tekin með í skólann þar sem nemendur greindu þau og krufðu fiskana. Mikil ánægja og áhugi var í hópnum.

>>Myndir I  -  >>Myndir II  -  >>Myndir III  

Skemmtun á sal
Nemendur í 4. - 7. bekk komu saman á sal í dag föstudaginn 28. september. Að þessu sinni var það
6. A.M.H. sem sá um skemmtiatriðin. Þau slógu í gegn og fengu góða athygli allra í salnum.
>>Myndir

Októbermánuður er „Göngum í skólann“ mánuður!
Í októbermánuði ár hvert er börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og frá skóla. Markmið verkefnisins eru meðal annars að:

  • Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

  • Heilbrigður lífsstíll fyrir alla fjölskylduna: Hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd og fleira.

  • Minni umferð við skóla: Draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Betra og hreinna loft og öruggari og friðsælli götur og hverfi.

  • Vitundarvakning um ferðamáta og umhverfismál: Hversu „gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Samfélagsvitund eykst.

  • Kennir reglur um öryggi á göngu og hjóli.

Nánar má lesa um alþjóðlega skólagöngumánuðinn á vef Heimilis og skóla.

Hjólreiðar
Þann 1. október taka gildi nýjar reglur varðandi hlaupahjól og hjólaskó. Við hvetjum ykkur til að kynna ykkur reglur sem gilda um hjólreiðar.

Textílmennt -Ullarþæfing
Nemendur í 2. bekk hafa verið að spreyta sig á ullarþæfingu í textílmennt. Þeir eru að búa til orm. Þá þæfa þeir úr ullarkempu og móta í kúlur. Kúlurnar eru tengdar í orm með bandi og perlum. Að lokum eru augu og nef límd á. Lítið endilega á myndirnar

Velferð og öryggi barna
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vinnur nú að því verkefni í samvinnu við skólayfirvöld á svæðinu að upplýsa og fá foreldra til samvinnu varðandi velferð og öryggi barna. Öllum aðstandendum barna í Hofsstaðaskóla ætti að berast upplýsingabréf frá skólanum en hann sendir það út að beiðni lögreglunnar.

Samvera - Salur
Nemendur 6-B.V. voru fyrstir til að bjóða eldra stiginu á skemmtun á sal þetta skólaárið. Dagskráin var fjölbreytt, leikrit, dans og grín. Nemendur tóku upp á myndband nokkra brandara sem þeir sviðsettu og sýndu hreyfimyndir sem þeir höfðu gert í Pivot forritinu.  Í lok samveru voru aðilar frá handknattleiksdeild og körfuknattleiksdeild Stjörnunnar með stutta kynningu á starfsseminni.
>>Skoða myndir

Ratleikur - útivist yngra stigs
Það var líf og fjör á skólalóðinni í síðasta tíma dagsins. Nemendur yngra stigs voru í ratleik sem tengdist umferðinni. Það má með sanni segja að krakkarnir hafi staðið sig vel og verið duglegir að rata um svæðið og finna rétt spjöld eins og sést á myndunum.
>>Myndir

Skólafatnaður
Áfram verður boðið upp á skólaflíspeysurnar hjá 66°N. Á vef foreldrafélagsins má lesa allar nánari upplýsingar um flíspeysurnar og skóla-Henson galla sem einnig eru í boði fyrir nemendur í Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla. Þar er einnig hægt að nálgast pöntunarseðil og leiðbeiningar um hvernig bera eigi sig að.

Ánægja með afmælishátíðina laugardaginn 1. september
Í ár fagnar Hofsstaðaskóli 30 ára afmæli sínu. Afmælishátíðin sem foreldrafélagið og starfsmenn skólans stóðu fyrir laugardaginn 1. september markar upphafið að afmælisári skólans. Nemendum ásamt fjölskyldum þeirra var boðið að taka þátt í gleðinni sem hófst með skrúðgöngu frá Safnaðarheimili Vídalínskirkju þar sem Hofsstaðaskóli var starfræktur fyrstu árin. Þegar komið var að skólanum hófust hátíðarhöldin á sal skólans. Boðið var upp á tónlist, leiki og að sjálfsögðu veitingar. Þess má geta að Kökubankinn færði skólanum dýrindis afmælistertu að gjöf og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir.
Lítið endilega á myndirnar. Þær voru teknar af nemendum í 6. bekk sem eru í valhóp í stafrænni ljósmyndun.
>>Skrúðgangan
>>Hátíðarhöld á sal og veitingar
>>Hátíðarhöld á sal og útileikir

Foreldraráð Hofsstaðaskóla óskar eftir áhugasömu fólki í stjórn.
Í foreldraráði sitja þrír aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar og er kosið til tveggja ára í senn.
Foreldraráð vinnur náið með skólastjórnendum og fylgist með innra starfi skólans og áætlunum um skólahald. Foreldraráð gefur umsagnir um skóladagatal, skólanámsskrá, fer yfir stundaskrár svo dæmi séu nefnd.

Að vera í foreldraráði gefur góða og ánægjulega innsýn í starfsemi skólans. Foreldraráð fundar mánaðarlega og eru fundargerðir og upplýsingar um foreldraráðið að finna á heimasíðu skólans. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að setja sig í samband við foreldrarad@hofsstadaskoli.is

Umferðarfræðsla
Það er rík ástæða til að leggja áherslu á umferðafræðslu fyrstu daga skólaársins. Foreldrar eru hvattir til að ræða við börnin sín um hættur í umferðinni og fylgja þeim yngstu í skólann til að byrja með og fara yfir umferðarreglurnar með þeim. Vikuna 27.-31. ágúst hafa kennarar rætt um umferðarmál og nemendur hafa unnið verkefni.
Að lokum má geta þess að þeir eldri verða að sýna tillitsemi og gott fordæmi í umferðinni t.d með því að nota hjálma og endurskinsmerki. Við bendum á krækjusíðu skólans um umferðarfræðslu. Þar má m.a. nálgast upplýsingar og gagnvirk verkefni.

Afmælishátíð 1. september 2007
Foreldrafélagið og starfsmenn Hofsstaðaskóla biðja ykkur um að taka frá laugardaginn 1. september milli kl 11 og 14. Þá verður haldin 30 ára afmælishátíð skólans og er nemendum og fjölskyldum þeirra boðið til hátíðarinnar.
Þetta verður fyrst og fremst hátíð nemenda og munu þeir taka þátt í hátíðarhöldunum og undirbúningi þeirra. Byrjaður verður á skrúðgöngu að Hofsstaðaskóla frá Safnaðarheimili Vídalínskirkju þar sem Hofsstaðaskóli var starfræktur fyrstu árin. Hátíðin fer fram við Hofsstaðaskóla og verður meðal annars boðið upp á tónlist, leiki í umsjón nemenda og afmælisköku.
>>sjá auglýsingu

Foreldrabréf skólastjóra 24. ágúst 2007

Útivist
Nemendur á yngra stigi notuðu síðustu kennslustundina föstudaginn 24. ágúst til útivistar. Nemendur í 1. bekk fóru á leiksvæði í nágrenni skólans en nemendur í 2. - 4. bekk fóru á svæðið við Silfurtún. En lítið á myndirnar því þær segja meira en mörg orð.
>>Útivist yngra stigs

Búið að ráða tónmenntakennara
Jón Bjarni Pétursson og er tónlistarmaður og Garðbæingur. Hann leysir Unni Þorgeirsdóttur tónmenntakennara af til 1. febrúar 2008 eða þar til hún kemur úr fæðingarorlofi. Jón Bjarni mun hefja kennslu mánudaginn 27. ágúst.

Skólasetning
Skólinn var formlega settur miðvikudaginn 22. ágúst. Margrét Harðardóttir skólastjóri bauð nemendur og aðstandendur þeirra velkomna í skólann. Hún rakti í stutt máli hvað framundan væri í skólastarfinu og fór yfir hagnýt atriði eins og matarmál og dvöl í tómstundaheimili.Eftir skólasetninguna héldu nemendur til kennslustofu ásamt umsjónarkennara. Kennslu lýkur í dag kl. 13:20.

Foreldrar athugið að skrá börn ykkar í mataráskrift og tómstundaheimili

Tómstundaheimili Hofsstaðaskóla
Forstöðumaður tómstundaheimilis Hofsstaðaskóla er Ágústa Kjartansdóttir. Nálgast má upplýsingar um starfsemi tómstundaheimilisins hér á vefsíðu þess.

 

Skólaárið 2006-2007

Vor 2007

 

Myndir úr bekkjarstarfinu 2006-2007

 

4. G.P. 4. H.K. 4. Ó.H.G.

Úlfarsfell

Náttfatapartý

Leynigesturinn Jasmín

Sorpa

Þjóðminjasafnið

Hreinsun á skólalóð

Ritþjálfi og skautaferð

Piparkökumálun

Leynigesturinn Ronja

Þjóðminjasafnið

Bekkjarkvöld

Heimsókn í Sorpu

Ýmsar myndir

Öskudagur

Skóladagur í desember

Skautaferð
5. A.M.H. 5. B.J. 5. B.V.

Hópavinna

Rafheimar

Tölvutími

   

Rafheimar

   

Þjóðminjasafnið

   

Skólalóð og Skautaferð

Reykjavíkurferð
Diskótek
Tölvustofa-stærðfræði
Leikhúsferð

6. B.Ó.

6. M.G.

6. Ó.P.

Vífilsstaðavatn-úrvinnsla

Vífilsstaðavatn-úrvinnsla

Vífilsstaðavatn-úrvinnsla

Morgunverður

Skemmtun á sal

Skemmtun á sal

Bingó

Reiptog

Húsdýragarðurinn

Bekkjarkvöld

   
     
Reykholt
Keilir
Skautaferð
Diskótek
Hrekkjavaka
Vífilsstaðavatn I
Vífilsstaðavatn II

7. A. R.

7. M.Á.

7. L.K.

Gljúfrasteinn Gljúfrasteinn Gljúfrasteinn

Skautaferð

Graskersskurður

Evrópski tungumáladagurinn

Heimsókn Árna G.

Skautaferð

Skautaferð

     
 
Diskótek í Flataskóla
Reykir í Hrútafirði-upplýsingar
Hrekkjavökuball
Undirbúningur dansleiks (Þema: Hrekkjavaka)

 

Skólaslit
29. starfsári Hofsstaðaskóla lauk 7. júní síðastliðinn. Skólinn fagnar 30 ára afmæli sínu laugardaginn
1. september n.k. með veglegri afmælishátíð sem haldin verður í samstarfi við foreldrafélagið.
Ánægjulegt var að sjá hve margir foreldrar komu með börnum sínum á skólaslitin.
Á skólaslitunum stjórnaði Hildur Jóhannesdóttir kór og fjöldasöng og skólastjóri og deildarstjórar ávörpuðu nemendur. Veittar voru viðurkenningar fyrir frábæran námsárangur í 7. bekk. Kiwanisklúbburinn Setberg verðlaunaði þá nemendur í 7. bekk sem náðu bestum árangri í íslensku og Marel veitti verðlaun í nýsköpunarkeppninni í 5. bekk og lampasamkeppninni í 6. og 7. bekk.
Nemendur fóru síðan í bekkjarstofur og fengu afhenta vitnisburði og kvöddu umsjónarkennara sína.
>>Skólaslit 6. bekkur myndir
>>Skólaslit 7. bekkur myndir

Eftirtaldir nemendur úr 7. bekk hlutu viðurkenningar Kiwanisklúbbsins Setbergs
fyrir bestan árangur í íslensku:

7. A.R.
Alls voru fjórir nemendur með hæstu meðaleinkunn í 7. A.R. Það voru þær:
Brynja Rut Blöndal
Ester Ósk Pálsdóttir
Freydís Halla Einarsdóttir
Nína Björg Arnardóttir
í 7. L.K.
Guðrún Ósk Kristjánsdóttir
7. M.Á.
Hugrún Elvarsdóttir

Hofsstaðaskóli veitti viðurkenningar fyrir bestan samanlagðan námsárangur og almennar umsagnir.
Eftirtaldir nemendur hlutu viðurkenningu:
Freydís Halla Einarsdóttir 7. A.R.
Guðrún Ósk Kristjánsdóttir 7. L.K.
Hugrún Elvarsdóttir 7. M.Á.

Nýsköpunarkeppni í 5. bekk

3. sæti - Gómhlíf Sóley Ásgeirsdóttir 5. B.V.
2. sæti -Tannrétting-blikkteinar Hjördís Lilja Hjálmarsdóttir 5. B.J.
1. sæti -Hólahjálmur með blikkandi ljósum Marinella Sigurðardóttir 5. B.J.

 

IMG_5852
Sigurvegarar í nýsköpunarkeppninni hlutu sjónauka að launum.

6. bekkur - val 20 ljósa sería

3. sæti Hjólkoppur Magnús Bjarki Guðmundsson 6. Ó.P.
2. sæti Konfektkassi Sara Lovísa Sófusdóttir 6. M.G.
1. sæti Hvítur kassi með spegli Brynjar Ísak Arnarsson 6. B.Ó.

IMG_5853

7. bekkur - val lampasamkeppni 1 perustæði

3. sæti eldflaug Þorsteinn Steinberg Allansson 7. L.K.
2. sæti grænn lampi Nadia Margret Jamchi 7. L.K.
1. sæti tveir ferhyrningar Anna Gréta Sigurðardóttir  7. L.K.

IMG_0043

Að auki hlaut Sigurbjörg Selma Sigurðardóttir í 6. B.Ó. útnefninguna Hönnuður Hofsstaðaskóla fyrir einstaka útsjónarsemi og aðstoð við samnemendur. Sigurbjörg Selma var alltaf tilbúin að veita aðstoð, stuðning og ráð sem þeim eftir því sóttu. Einnig var hún öðrum nemendum til fyrirmyndar hvað varðar framkomu og umgengni.

Sala á hugmynd
Nína Ingólfsdóttir 6. M.G. sem tók þátt í nýsköpunarkeppninni í fyrra fékk á skólaslitum afhentar
krónur 50.000 frá Ali en þeir keyptu hugmynd hennar að áleggsbréfi með spaða.

IMG_5859

Fundur með foreldrum verðandi 1. bekkinga
Foreldrum nemenda sem hefja skólagöngu í haust í 1. bekk í Hofsstaðaskóla var boðið til fundar í skólanum  þann 15. maí. Tilgangur fundarins er að gera foreldrum kleift að hitta umsjónarkennara barna sinna og stjórnendur skólans. Dagskráin var á þá leið að skólastjóri kynnti skólastarfið, skipulag innra starfs og aðra gagnlega þætti. Að því búnu var foreldrum sýndur skólinn – væntanlegur vinnustaður barna þeirra. Mæting var nokkuð góð en alls voru um 50 manns á fundinum.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar verða settar á heimasíðu skólans undir: Um skólann – 1. bekkur.

Verkfræðingar framtíðarinnar
Nemendur í 6. bekkjum, blár stærðfræðihópur fengu það verkefni að hanna og búa til brú úr dagblöðum. Brúin átti að vera 50 cm löng og þau máttu aðeins nota smá málningarlímband auk dagblaða. Nemendur voru mjög áhugasamir og tókst þeim að búa til ótrúlega sterkar brýr sem báru allt að 40 kg af bókum. Þarna voru greinilega verkfræðingar framtíðarinnar að verki.
>>Myndir

Nemendur í 7. A.R. færa börnum á skammtímavistinni Móaflöt peningagjöf
Nemendur í 7.A.R. í Hofsstaðaskóla gáfu langveikum börnum á Skammtímavistinni Móaflöt 24 í Garðabæ 40.000 krónur. Þroskaþjálfi þeirra, Sigurbjörg, kom í heimsókn í Hofsstaðaskóla og nemendurnir afhentu henni peninginn. Hún fræddi nemendurna um börnin og vandamál þeirra. Börnin koma frá Mosfellsbæ, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ og Seltjarnarnesi. Á heimilinu eru 29-30 börn á aldrinum 2-16 ára. Börnin dvelja annað hvort yfir helgi eða viku í senn. Á heimilinu er heitur pottur, trompólín, sjónvarp, tölva og margt fleira svo börnin geti skemmt sér. Á vakt eru oftast 4-6 starfsmenn í einu. Á heimilinu er sálfræðingur, hjúkrunarfræðingur, félagsfræðingur, þroskaþjálfi og fólk 18 ára og eldri sem eru sjálfboðaliðar. Óskalisti hangir uppi á heimilinu þar sem börn og starfsmenn geta tjáð sig um hluti sem þau vilja nýta peninginn í.
Fréttina unnu: Nína, Karítas og Sigurjón nemendur í 7.A.R.


Nemendur í 7. A.R. ásamt Sigurbjörgu þroskaþjálfa.

Samtökin 78 fræða nemendur í 7. bekk
Fimmtudaginn 31. maí sóttu tveir fulltrúar frá Samtökunum '78 sjöundu bekkinga heim, þau Baldvin og Auður.  Tilgangur með heimsókninni var að fræða nemendur um hvernig það er að koma út úr skápnum á unglingsárunum og vera lesbía og hommi.  Nemendur voru búnir að undirbúa sig með því að skrifa spurningar á blað sem fulltrúarnir svöruðu.  Heyra mátti saumnál detta á meðan þau töluðu og margir voru með hendur á lofti. Nemendur sem og kennarar voru eflaust fróðari eftir kynninguna.

Skólaþríþraut FRÍ og Iceland Express
Skólaþríþrautin fór fram sunnudaginn 20. maí og var það einbeittur hópur grunnskólabarna úr 5. og 6. bekk sem mætti í frjálsíþróttahöllina í Laugardal. Einbeittir keppendur lögðu sig allan fram enda voru mættir sterkustu einstaklingarnir úr 1100 manna forkeppni sem fór fram í skólum landsins í vetur. Keppnisandinn var slíkur að eitt Íslandsmet í 12 ára flokki stelpna féll. Upphitun fór fram upp úr 12:30 undir leiðsögn Silju Úlfarsdóttur landsliðskonu. Keppt var í 60 m. hlaupi, kúluvarpi og hástökki. Starfsmenn mótsins voru fremsta frjálsíþróttafólk landsins. Verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum bekk af hvoru kyni var ferð á Gautaborgarleikana í sumar. Keppendur Hofsstaðaskóla stóðu sig mjög vel en þeir voru Andrea Gunnarsdóttir og Heiðar Ægisson úr 6. MG og Harpa Guðrún Hreinsdóttir 5. B.V. sem náði þeim fábæra árangri að verða í þriðja sæti í sínum flokki.
Til hamingju krakkar með árangurinn!
>>Myndir

 

Fannar Már Oddsson- Norðurlandameistari í Kung Fu
Þrír ungir drengir kepptu fyrir hönd Íslands á Norðurlandamóti í Kung fu sem fram fór í Osló í byrjun maí. Allir stóðu þeir sig með miklum sóma, hrepptu tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun. Það verður að teljast mjög góður árangur því Kung fu hefur aðeins verið kennt hér á landi síðastliðin þrjú ár.
Fannar Már, sem er nemandi í 7. M.Á. sýndi sérstakar sverðaæfingar og hlaut gullverðlaun.
Glæsilegur árangur! Til hamingju Fannar Már.

Norrænt kóramót í Garðabæ
Fagur söngur hljómaði í Garðabæ helgina 17. - 20. maí. Þá fór fram norrænt kóramót þar sem um 650 ungmenni frá öllum Norðurlöndunum tóku þátt. Mótið var skipulagt af tónmenntakennarafélagi Íslands en framkvæmdastjóri mótsins var Hildur Jóhannesdóttir tónmenntakennari hér í Hofsstaðaskóla. Aðaltónleikar mótsins fóru fram í íþróttahúsinu í Mýrinni sunnudaginn 20. maí. Þá sungu allir kórarnir saman. Mótið gekk mjög vel og ríkti almenn ánægja meðal þátttakenda. Hægt er að skoða myndir frá kóramótinu á vefslóðinni http://picasaweb.google.com/tonmennt4

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru afhent í gær, 15. maí í Þjóðmenningarhúsinu. Íþróttafélagið Grótta á Seltjarnarnesi hlaut verðlaunin að þessu sinni fyrir samræmingu skóladags og æfingatíma í samvinnu við bæjaryfirvöld og Grunnskóla Seltjarnarness.
Þrjú verkefni frá Garðabæ hlutu viðurkenningu. Það voru tvö verkefni frá Flataskóla: Annars vegar verkefnið Fjölmenningarhátíð en þar voru þau Ingibjörg Baldursdóttir bókasafnsfræðingur og Vilhjálmur Kári Haraldsson í fararbroddi. Hins vegar var það foreldrafélag skólans sem hlaut viðurkenningu fyrir verkefnið 10 ráð handa foreldrum og nemendum. Heimasíða Hofsstaðaskóla og Elísabet Benónýsdóttir vefstjóri hlutu einnig viðurkenningu.
>>sjá nánar (frétt og rökstuðning foreldrafélags Hofsstaðaskóla)

 

Vilhjálmur Kári Haraldssonog Ingibjörg Baldursdóttir

Elísabet Benónýsdóttir

Eimskip og Kiwanis gefa börnum reiðhjólahjálma
Fimmtudaginn 3. maí komu fulltrúar frá Kiwanishreyfingunni og afhentu nemendum í 1. bekkjum skólans reiðhjólahjálma. Um er að ræða sérstakt átak í samvinnu Kiwanishreyfingarinnar og Eimskips. Þetta er í fjórða skiptið sem félögin standa að þessu verkefni en um 14.000 börn hafa nú þegar fengið hjálma.
Verkefnið nýtur ráðgjafar og stuðnings Herdísar Storgaard, forstöðumanns hjá Forvarnarhúsinu. Herdís telur að verkefnið veki athygli á mikilvægi þess að börn noti reiðhjólahjálma rétt, en foreldrar verða að fylgja þessu vel  eftir.
>>Myndir

 

 

Ný hljóðfæri
Hofsstaðaskóli hefur nú nýlega eignast ný hljóðfæri. Fjárfest var í trommusetti, rafmagnsbassagítar og rafmagnsgítar ásamt öllu tilheyrandi. Með þessari kærkomnu hljóðfæraviðbót hafa opnast miklir möguleikar til tónlistariðkunar, einkum í eldri bekkjum skólans. Nú þegar er kominn vísir að popphljómsveit og á árshátíð 7. bekkinga kom rafmagnsgítarinn að góðum notum.
Nýtt fullbúrið trommusett kallar þó á fleiri en eldri börnin. Í síðustu viku fengu 1. bekkingar aldeilis að reyna sig við húðirnar og á myndinni hér fyrir ofan má eflaust sjá einhverja öfluga trommuleikara framtíðarinnar.
 
Vímuvarnarhlaup Lionsklúbbsins Eikar
Árlegt vímuvarnarhlaup Lionsklúbbsins Eikar fór fram í blíðskaparveðri þriðjudaginn
8. maí. Nemendur í 5. bekkjum skólans skipuðu í eitt lið úr hverjum bekk. Liðin öttu kappi í boðhlaupi á fótboltavelli skólans. Allir nemendur og starfsfólk skólans voru í áhorfendahópnum.
Það var mjög jafnt á með liðunum öllum en nemendur í 5. B.J. stóðu uppi sem sigurvegarar að þessu sinni. Til hamingju 5. B.J.
Áður en hlaupið hófst komu nemendur ásamt kennurum saman á sal skólans. Þar spjallaði Sóley Halldórsdóttir handknattleikskona við krakkana og ræddi hún m.a. um skaðsemi vímuefna og mikilvægi þess að geta tekið eigin ákvarðanir og sagt Nei við vímuefnum.
 


>>Myndir

Árshátíð 7. bekkinga -Sumarstemmning
Árshátíð 7. bekkja var haldin fimmtudaginn 26. apríl. Þema kvöldsins var sumarstemmning. Allir voru hvattir til að mæta í litríkum og sumarlegum fötum. Á dagskrá kvöldsins var hæfileikakeppni 7. bekkinga en þar komu fram fjölbreytt og skemmtileg atriði. Veittar voru viðurkenningar í þremur flokkum: Besta tónlistaratriðið, frumlegasta atriðið og flottasta atriðið. Það voru þeir: Fannar Már, Sigurbjörn Ari og Pétur Örn sem hlutu viðurkenningu fyrir besta tónlistaratriðið. Frumlegasta atriðið var Flingo dans sem þau: Nadia, Guðrún, Daði, Willard og Snorri sömdu og sýndu. Flottasta atriðið að þessu sinni var stuttmyndin Jói Fel eftir Pétur Geir, Hlyn, Sigurbjörn Ara. Þeir nutu dyggrar aðstoðar móður Sigurbjarnar hennar Dagbjartrar Hansdóttur.

Myndir:

Undirbúningur Árhátíð I Árshátíð II Árshátíð III Árshátíð IV Árshátíð

 

 

 

 

 

 

 


Glæsilegur árangur
Tvær ungar stúlkur úr Hofstaðaskóla stóðu sig mjög vel á Reykjavíkurmótinu í listhlaupi á skautum sem fram fór um síðustu helgi í Skautahöllinni í Laugardal. Þetta eru þær Elfa Rut Gísladóttir í 5. B.J. sem keppti í flokki 10 ára og yngri B og gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn flott þar sem 18 stúlkur öttu kappi saman. Þetta er frábær árangur , sérstaklega með tilliti til þess að Elfa Rut hefur aðeins æft skauta í tæpa tvo vetur. Hin stúlkan er hún Nadia Margrét Jamchi í 7. L.K. og keppti hún í Novice flokki, en þar keppa stúlkukr sem lengra eru komnar í íþróttinni. Sex stúlkur kepptu í þessum flokki og lenti Nadia Margrét í öðru sæti sem er glæsilegur árangur.
Einnig má geta þess að Nadia Margrét keppti fyrir hönd Íslands á Norðurlandamóti í Helsinki í febrúar, en þetta er í fyrsta skipti sem Ísland sendir keppendur í Novice á alþjóðlegt mót. Stúlkurnar tvær tóku einnig þátt í Íslandsmeistaramóti sem fram fór á Akureyri í febrúar og entu þær í sömu sætum þar í sínum flokki. Stúlkurnar eru greinilega mjög efnilegar og eiga framtíðina fyrir sér á skautum.

Fræknar skíðastelpur
Þrjár skíðastelpur úr Hofsstaðaskóla
(á mynd talið frá vinstri) Hugrún Elvarsdóttir 7-M.Á., Freydís Halla Einarsdóttir 7-A.R og Erla Ásgeirsdóttir 7-M.Á. gerðu sér lítið fyrir og röðuðu sér í efstu sætin á Andrésar Andar leikunum sem eru eiginlegt íslandsmeistaramót barna á skíðum. Þær æfa og keppa með skíðafélögunum Ármanni og Breiðablik. Hugrún sigraði í svigi, Erla varð önnur og Freydís þriðja. Í stórsvigi snerist þetta við en þar sigraði Freydís, Erla varð önnur og Hugrún þriðja. Þess má geta að alls 700 keppendur mættu til leiks.  Til hamingju stelpur!
 

Hafdís Bára Kristmundsdóttir ráðin aðstoðarskólastjóri
Hafdís Bára Kristmundsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarskólastjóri við Hofsstaðaskóla. Hafdís hóf störf við skólann s.l. haust sem deildarstjóri yngri deilda. Hún starfaði áður við Garðaskóla og var þar í 18 ár, bæði sem kennari og deildarstjóri. Hafdís lauk framhaldsnámi í stjórnun menntastofnana frá KHÍ árið 2006 og er nú að ljúka meistaranámi við sama skóla.

Hafdís hefur síðastliðna daga tekið á móti hópum af verðandi nemendum skólans sem koma með leikskólanum sínum í heimsókn til okkar til að kynnast skólanum, starfsfólki og væntanlegum skólafélögum.
>>Myndir

 


 

 

 

Hafdís með nokkrum verðandi nemendum Hofsstaðaskóla.
Krakkarnir komu í heimsókn af leikskólanum sínum til að undirbúa sig fyrir komandi skólaár.

Verðandi 1. bekkingar
Sú hefð hefur skapast að verðandi 1. bekkingar komi í tvær heimsóknir í skólann að vori. Í fyrri heimsókninni skoða þau skólann og leiksvæðið. Í þeirri seinni dvelja þau í 1. bekk í tvær til þrjár stundir, taka þátt í kennslu, fara í frímínútur og fleira. Eldri nemendur taka vel á móti krökkunum, sýna þeim verkefnin sín og spjalla við þau. Margir eiga ánægjulega endurfundi við vini af leikskólanum og nágranna sem væntanlega samnemendur. Við hlökkum til að fá þessa fínu krakka til okkar í skólann í haust.
>>myndir

Foreldrabréf
Foreldrum bárust tvö bréf í tölvupósti frá skólastjóra föstudaginn 20. apríl. Í öðru bréfinu eru fjallað um umgengni í matsal skólans. Við viljum vera stolt af mötuneytinu okkar og umgengni nemenda. Foreldrar eru hvattir til að fara yfir reglurnar í matsalnum með nemendum og hvetja þá til að vera öðrum til fyrirmyndar.
Í hinu bréfinu fer Margrét yfir skólastarfið og skólabraginn frá því hún tók við skólastjórn.
>>Umgengni í matsal
>>Foreldrabréf

Yngri kór Hofsstaðaskóla flutti söngleikinn um Kardimommubæinn
Miðvikudaginn 28. mars flutti yngri kór Hofsstaðaskóla söngleikinn Kardimommubæinn. Fyrri sýningin var fyrir nemendur í 1. - 3. bekk en einnig var haldin opin sýning um kvöldið fyrir aðstandendur. Sýningarnar gengu mjög vel, leikarar léku við hvern sinn fingur og sungu af hjartans list. VIð óskum krökkunum til hamingju með frábæra sýningu.
>>Myndir

Símanotkun nemenda Hofsstaðaskóla
Mikið hefur borið á að nemendur biðji um að fá að nota síma skólans. Ákveðið hefur verið að takmarka símanotkun nemenda og verður þeim einungis leyft að hringja í neyðartilvikum.
Sjá nánar reglur um símanotkun nemenda og farsímanotkun.

Mjólk í áskrift
Undanfarin ár hefur skólinn selt mjólk og aðrar vörur frá MS. Nemendur hafa keypt miða á skrifstofunni og fengið síðan viðkomandi vörur afhentar í nestistíma eða hádegi. Nú hefur það fyrirkomulag verið lagt niður m.a. vegna þess að á síðasta ári var nánast engin eftirspurn eftir því.  Miðar verða því ekki seldir í haust.
Í vetur verður mjólk eingöngu seld í áskrift.  Mjólkin verður afgreidd í salnum með hádegismatnum Fyrra innheimtutímabil er frá 1. september – 30. janúar 2007 og seinna tímabil frá 1. febrúar til 31. maí 2007.Gjald fyrir fyrra tímabil er krónur 2.200. Hægt er að greiða á skrifstofu skólans eða í heimabanka. Kennitala skólans er 671088-3799 og reikningsnúmer 546-26-3799.Ef greitt er í heimabanka vinsamlegast sendið þá kvittun til skólans hskoli@hofsstadaskoli.is  með skýringu.
Skólastjóri

Norrænt kóramót í Garðabæ
Dagana 17. - 20. maí verður haldið norrænt kóramót í Garðabæ. Kóramótið, NORBUSANG- Mystik og musik, er skipulagt af Hildi Jóhannesdóttur tónmenntakennara í Hofsstaðaskóla. Mótið er að hluta til fram í Mýrinni og Hofsstaðaskóla. Það verður því mikið líf og fjör þessa daga. Starfsemi Tómstundaheimilis skólans verður flutt annað föstudaginn 18.maí.

Tómstundaheimili - breyting á starfstíma á skipulagsdegi 18. maí
Öllum börnum í 1. - 4. bekk stendur til boða dvöl í Tómstundaheimilinu frá kl: 8:00-17:00 föstudaginn 18. maí. Þá er skipulagsdagur í skólanum. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Greiða þarf krónur 249.-fyrir hverja skráða klukkustund umfram dvalarsamning. Þeir foreldrar sem hafa hug á að nýta sér þjónustu Tómstundaheimilisins 18. maí eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið hskoli@hofsstadaskoli.is fyrir fimmtudaginn 10. maí. Skráningin er bindandi.
>>Nánari upplýsingar

Könnun á Tómstundaiðkun nemenda í 5. - 7. bekk
Nemendur í 6. bekk, bláum hóp í stærðfræði lögðu könnun fyrir nemendur í 5. - 7. bekk í Hofsstaðaskóla þar sem spurt var um tómstundaiðkun. Þau unnu svo úr niðurstöðunum og þar kemur margt áhugavert í ljós.
Lítið á nánari umfjöllun um niðurstöðurnar.

Heimili og skóli - fulltrúaráðsfundur
Fulltrúar Heimilis og skóla komu saman 23. og 24. mars á ráðstefnu undir yfirskriftinni vitundarvakning í foreldrasamfélaginu.
Ráðstefnan var haldin hjá okkur í Hofsstaðaskóla í Garðabæ og var gestunum kynnt starfsemi skólans og foreldrasamstarf í bæjarfélaginu. Þétt dagskrá var báða dagana og voru m.a. haldnir fyrirlestrar um mikilvægi samvinnu heimila og skóla en auk þess hvernig hægt er að hvetja foreldra til að taka þátt í foreldrasamstarfi. Einnig var boðið upp á örnámskeið í framsögn.

Ráðstefnan þótti takast vel og er áhugavert að sjá hversu vel svæðasamtökunum hefur tekist til og ánægjulegt hve mörg ný samtök eru í startholunum. Skapaðist því kjörinn vettvangur til að bera saman bækur sínar og deila af reynslunni.

Tilnefningar til foreldraverðlauna Heimilis og skóla
Foreldraverðlaun Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra verða veitt 15. maí 2007 í 12. sinn. Að auki verða veitt hvatningarverðlaun til einstaklinga og skóla ef tilefni þykir til. Nánar um foreldraverðlaunin hér

Kennarabreytingar í íþróttakennslu
Hreinn Októ Karlsson íþróttakennari hefur verið frá íþróttakennslu síðan í lok febrúar vegna meiðsla. Jelena Jovanovic íþróttakennari leysir hann af þar til hann kemur til baka úr veikindaleyfi.
Ragnheiður Þórdís Ragnarsdóttir íþróttakennari fer í barnsburðarleyfi í næsta mánuði en Jelena leysir hana einnig af. Arnar Már Þórisson skólaliði og frjálsíþróttamaður verður Jelenu til aðstoðar í íþróttatímum.
Anna Sigríður Erlingsdóttir íþróttakennari kennir sund í öllum árgöngum.

Tónlist fyrir alla
Miðvikudaginn 11. apríl heimsóttu frábærir tónlistarmenn Hofsstaðaskóla. Það voru þeir Örn Árnason sögumaður, Björn Thoroddsen gítar, Gunnar Hrafnsson bassi og Ásgeir Óskarsson trommur. Þeir fluttu okkur dagskrá sem bar yfirskriftina „Heimsreisa Höllu” en hún byggir á íslenska þjóðlaginu „Ljósið kemur langt og mjótt”. Uppákoman var liður í verkefninu Tónlist fyrir alla. Hlustun og þátttaka nemenda var til fyrirmyndar.
>>Myndir eldri hópur
>>Myndir yngri hópur
Nemendur í 5. A.M.H. sáu um skemmtiatriðin föstudaginn 30. mars, síðasta kennsludag fyrir páska. Þá var einnig gulur dagur í skólanum og mælst til þess að allir mættu í einhverju gulu.
Lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar
Þriðjudaginn 20. mars fór lokahátíð stóru upplestrarkeppninnar fram í 10. sinn í Garðabæ. Þar tóku þátt
lesarar úr 7. bekkjum Garðabæjar og Seltjarnarness.
Hugrún Elvarsdóttir 7. M.Á. í Hofsstaðaskóla varð í 2. sæti en Sölvi Rögnvaldsson úr Grunnskóla Seltjarnarness hreppti 1. sætið. Það var svo Erla Ylfa Óskarsdóttir úr Flataskóla sem vermdi 3. sætið. Auk þess hlaut Árni Beinteinn Árnason sérstök verðlaun fyrir ljóðalestur. Við óskum öllum þeim sem tóku þátt í upplestrarkeppninni  innilega til hamingju með frábæra frammistöðu.
Allir þátttakendur fengu bók frá Eddu-útgáfu en Byr Sparisjóður veitti þremur efstu þátttakendunum peningaverðlaun.
Á hátíðinni voru einnig lesin frumsamin ljóð og ljóð á Serbnesku. Auk upplesturs voru tónlistaratriði bæði frá skólunum og Tónlistarskóla Garðabæjar.
>>sjá myndir

 


Hugrún Elvarsdóttir
7. M.Á. ásamt foreldrum sínum Elvari Erni Unnsteinssyni
og Þyri Rafnsdóttur
Hugrún hlaut 2. verðlaun í Stóru upplestrarkeppninni.

Hofsstaðaskólaskórinn flytur söngleik í 6 þáttum
Fimmtudaginn 15. mars flutti skólakór Hofsstaðaskóla söngleikinn María Mist slær í gegn. Fyrri sýningin var fyrir nemendur í 3. - 6. bekk en einnig var haldin opin sýning um kvöldið fyrir aðstandendur og aðra velunnara. Söngleikurinn fjallar um 11 ára gamla stúlku, Maríu Mist sem tekur þátt í hæfileikakeppni og vinnur. Í kjölfarið koma upp leiðindi því bekkjarfélagar snúa bakinu við henni. Hjálp berst svo þaðan sem síst skyldi.
Höfundur söngleiksins er Hildur Jóhannesdóttir tónmenntakennari. Hægt er að nálgast nánari upplýsingar um söngleikinn í leikskránni. Við óskum Hildi og skólakórnum innilega til hamingju með frábært framtak og frammistöðu.
>>Myndir I
>>Myndir II

 
Stóra upplestrarkeppnin - skólahátíð
Miðvikudaginn 7. mars var haldin skólahátíð í Hofsstaðaskóla til að velja fjóra fulltrúa skólans og einn til vara til að lesa á Héraðshátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem verður haldin þriðjudaginn 20. mars n.k. kl. 17-19 í Tónlistarskóla Garðabæjar. Tólf nemendur úr 7. bekkjum lásu stuttan texta og ljóð og stóðu sig mjög vel. Dómnefnd var því vandi á höndum. Eftirfarandi nemendur voru valdir fulltrúar skólans að þessu sinni: Brynja Blöndal 7. A.R., Erla Rut Eggertsdóttir 7. A.R., Hugrún Elvarsdóttir 7. M.Á., Sigurbjörn Ari Sigurbjörnsson 7. L.K. og til vara Pétur Geir Magnússon 7. L.K. Allir þátttakendur fengu gjöf frá skólanum í viðurkenningaskyni en auk þess fengu allir nemendur í 7. bekk viðurkenningarskjal fyrir þátttöku í stóru upplestrarkeppninni.

Pétur Geir, Sigurbjörn Ari, Hugrún, Brynja og Erla
>>Skoða myndir  

Þróun matarmála
Í kjölfar fjölmargra fyrirspurna og athugasemda frá foreldrum hefur svæðaráð tekið saman stutt yfirlit um þróun matarmála í grunnskólum Garðabæjar. Hér má nálgast yfirlit svæðaráðsins.

Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stúlkur í 6. og 7. bekk
Nýlega hófst sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir nemendur í 6. og 7. bekk. Námsráðgjafi skólans sér um námskeiðið og geta þeir nemendur sem hafa áhuga skráð sig hjá honum. Foreldrar nemenda geta einnig haft samband við námsráðgjafa.
Í fyrstu verður aðeins í boði námskeið fyrir stúlkur en sambærilegt námskeið fyrir stráka verður einnig í boði seinna. Á námskeiðinu er farið í sjálfsmynd, sjálfsmat, markmiðssetningu, leiðir til að bæta sjálfstraust, umhverfið og fleira.
Hægt er að hafa samband við námsráðgjafa með því að senda póst á netfangið: elvaba@hofsstadaskoli.is

Stór upplestrarkeppnin - skólahátíð
Nemendur í 7. bekk Hofsstaðaskóla taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni eins og á liðnu skólaári. Undirbúningur fyrir keppnina hófst formlega 16. nóvember s.l. á Degi íslenskrar tungu. Markviss þjálfun nemenda í upplestri inni í bekk hófst strax í haust þannig að allir nemendur í 7. bekk eru þátttakendur í upplestrarkeppninni.
Þann 7. mars verður haldinn skólahátíð hér í Hofsstaðaskóla þar sem fjórir nemendur úr hverjum bekk taka þátt. Á skólahátíðinni verða þeir fjórir nemendur valdir sem taka þátt í héraðshátíðinni auk varamanns. Hátíðin fer fram í sal skólans og hefst hún kl. 8:30. Nemendur lesa stuttan texta og ljóð. Margrét skólastjóri, Svanhildur kennsluráðgjafi í íslensku og Sigríður Dóra Gísladóttir blaðamaður og foreldri í Hofsstaðaskóla sjá um að velja fulltrúa okkar á héraðshátíðina. Nemendum í 6. bekkjum skólans er boðið á skólahátíðina og eru foreldrar og aðrir velunnarar einnig velkomnir.
Héraðshátíðin fer fram þann 20. mars n.k. í sal Tónlistarskólans í Garðabæ. Þar verða auk okkar fulltrúa, fjórir nemendur úr Flataskóla, einn úr Sjálandsskóla og fjórir af Seltjarnarnesi.

Grunnskólarnir kynntu starf sitt fyrir foreldrum 6 ára barna
Miðvikudaginn 28. febrúar kynntu grunnskólarnir starf sitt fyrir foreldum sex ára barna sem eru að hefja grunnskólanám haustið 2007. Kynningin fór fram í Tónlistarskóla Garðabæjar. Foreldrar geta valið milli fimm skóla: Alþjóðaskólann, Barnaskóla Hjallastefnunnar, Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla. Tveir þeirra fyrst nefndu eru einkareknir en samkvæmt samningum bæjarins við skólana þurfa foreldrar ekki að greiða þar skólagjöld.
Sjá kynningu Hofsstaðaskóla

Söfnunin: Börn hjálpa börnum-2007
4.bekkingar taka nú þátt í söfnuninni BÖRN HJÁLPA BÖRNUM 2007, sem er árlegt söfnunarátak ABC barnahjálpar í samstarfi við grunnskóla landsins. Að þessu sinni verður safnað fyrir uppbyggingu skólastarfs í Pakistan og Kenýa. Á heimasíðu ABC barnahjálpar www.abc.is má sjá upplýsingar um ABC barnahjálp, söfnunina Börn hjálpa börnum og starfið sem hafið er í Pakistan.
Söfnunin stendur frá 22. febrúar.-2. mars og munu börnin ganga í hús í sínu hverfi og safna framlögum í sérmerkta, númeraða söfnunarbauka.
Safnað verður m helgar frá hádegi eða á virkum dögum eftir að fólk er almennt komið heim úr vinnu.
Ætlast er til að þau séu tvö eða þrjú saman við að safna í baukana. Við vonum að allir taki vel á móti börnunum og leggi söfnuninni lið.

7. bekkur í Skólabúðir
Það var föngulegur hópur nemenda í fylgd umsjónarkennara sem hélt af stað frá skólanum í morgun. Ferðinni var heitið í Skólabúðirnar á Reykjum í Hrútafirði. Þar mun hópurinn dvelja vikuna 26. febrúar - 2.mars. Dagskráin sem bíður hópsins er bæði fjölbreytt og skemmtileg. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með ferð þeirra á nýja bloggvefnum þeirra www.123.is/reykir. Þar verður hægt að fá fréttir og skoða myndir. Einnig er þar tengill á vef Skólabúðanna í Reykjum þar sem hægt er að finna ítarlegar upplýsingar um Skólabúðirnar sem slíkar.

Mötuneyti í Hofsstaðaskóla
Mikið hefur verið rætt um matinn í mötuneytum í grunnskólum Garðabæjar í fjölmiðlum að undanförnu. Matseðlarnir eru í sífelldri endurskoðun hjá mötuneytisráðinu sem í eiga sæti fulltrúar frá Matarlyst, skólastjórar og foreldrar ásamt starfsmönnum á skólaskrifstofu. Í framhaldi af skýrslu Helgu Sigurðardóttur næringarráðgjafa hafa matseðlarnir verið endurskoðaðir m.t.t. til ábendinga hennar. Matarlyst, fyrirtækið sem við skiptum við, hefur tekið vel í allar tillögur um breytingar og hefur orðið við þeim óskum sem gerðar hafa verið. Helga Sigurðardóttir mun í framtíðinni fá alla matseðla til skoðunar með fjögurra vikna fyrirvara í þeim tilgangi að fara yfir þá og leggja mat á samsetningu þeirra og hollustu matarins.

341 nemandi af 385 í Hofsstaðaskóla er í áskrift í mötuneytinu, sumir nokkra daga í viku, aðrir alla daga. Mjög algengt er að yngri nemendur séu með fasta áskrift og áberandi er að fæstir nemendur eru skráðir í mat þá daga sem fiskur er í boði. Ég vil benda foreldrum sérstaklega á að Matarlyst kaupir fiskinn frá öðrum birgjum en áður og hann er nú eldaður hér í skólanum en við það hafa gæðin aukist til muna, enda er hann í miklu uppáhaldi hjá þeim sem eru í áskrift þá daga sem hann er í boði. Meirihlutinn af máltíðum í mötuneytinu er nú eldaður á staðnum, að undanskilinni t.d. kjötsúpu og grjónagraut.

Matarlyst tók upp þá nýbreytni að bera ávexti og grænmeti fram í „salatbar“ sem nemendur geta gengið að. Í máli starfsmanns Matarlystar kom fram að neysla á ávöxtum og grænmeti hefur stóraukist í kjölfarið en hann pantar nú þriðjungi meira en áður.



Nemendur eru ánægðir með þetta fyrirkomulag og ekki er annað að sjá
en þeir séu að öllu jöfnu ánægðir með matinn.

 

Öskudagur 2007
Mikið líf og fjör er í skólanum í dag miðvikudaginn 21. febrúar. Nemendur og starfsfólk eru mætt í sínu fínasta pússi til að eiga góða stund saman. Nemendur freista þess að heilla nammikónginn og nammidrottninguna með skemmtilegum atriðum og fá nammi að launum. Diskótekið Dísa heldur uppi stuðinu og margt annað verður í boði víðsvegar um skólann s.s. hattagerð, andlitsmálun og grímugerð. Hér ljómar hvert andlit. En látum myndirnar tala!
>>Öskudagur I
>>Öskudagur II

>>3. R.J.-Öskudagur
 
 
Litbrigði fjölskyldna -Fræðslufundur 7. mars
Næstkomandi miðvikudagskvöld, 7. mars verður sameiginlegur fræðslufundur foreldrafélaganna í Garðabæ. Þema kvöldsins er Litbrigði fjölskyldna þar sem fjallað verður um fjölbreytileika fjölskyldugerðar nútímans. Fyrirlesarar eru Össur Skarphéðinsson, Edda Rósa Gunnarsdóttir, Felix Bergsson, Valgerður Halldórsdóttir og Edda Ólafsdóttir – sjá viðfangsefni í meðfylgjandi auglýsingu.
 
Þorrablót 6. bekkinga
Árlegt þorrablót 6. bekkinga var haldið fimmtudaginn 8. febrúar í sal Hofsstaðaskóla. Undirbúningur stendur yfir í nokkurn tíma fyrir skemmtunina og leggja nemendur sig ávallt mikið fram undir dyggri handleiðslu starfsfólks skólans. Æfa þarf danssporin, skemmtiatriðin og búa til skreytingar. Einnig þarf að undirbúa þorramatinn. Mikið mæðir á umsjónarkennurum síðustu dagana fyrir þorrablótið sem og öðrum starfsmönnum sem að undirbúningum kemur, en útkoman er glæsileg! Gestir skemmtu sér hið besta líkt og myndirnar bera með sér!
>>Þorrablót undirbúningur
>>Þorrablót skemmtunin 8. febrúar

 
Öskudagur- 21. febrúar
Á öskudag ætlum við að eiga skemmtilega stund saman, starfsfólk og nemendur. Skólastarf á öskudag hefst kl: 8:30 og lýkur skóladegi kl: 12:00 og telst hann því skertur skóladagur. Ekki er gert ráð fyrir hefðbundinni stundatöflu. Nemendur hafa með sér venjulegt nesti í morgunhressingu, ekki verður boðið upp á mat í hádeginu.
Mælst er til að nemendur komi í einhvers konar búningi. Á dagskrá verður fjöldasöngur, Diskótekið Dísa verður í salnum, sælgætiskóngur og -drottningar verða í skólanum og margt fleira.
>>sjá nánar

 
Merkur áfangi-100 dagar í Hofsstaðaskóla
Til hamingju krakkar

Mikið líf og fjör var í skólanum föstudaginn 26. janúar þegar nemendur í 1.bekkjum skólans náðu þeim merka áfanga að hafa mætt 100 daga í skólann. Krakkarnir báru allir 100 daga kórónur, unnu ýmis verkefni sem fólu í sér töluna 100 og síðast en ekki síst var slegið upp heljarinnar tívolí og dansleik.
>>100 daga hátíð I
>>100 daga hátíð II

Vinátta - forvarnarvika gegn einelti
Vikan 22. - 26. janúar var tileinkuð forvörnum gegn einelti. Kennarar lögðu áherslu á vináttuna og jákvæð samskipti til að fyrirbyggja einelti. Vikan hófst á því að allir nemendur og starfsmenn skólans komu saman á mánudagsmorgninum og mynduðu vinakveðju umhverfis skólann. Þegar tekist hafði að mynda keðjuna var genginn einn hringur í yndislegu veðri. Ýmsar aðrar uppákomur fylgdu svo í kjölfarið í bekkjum skólans. Haldnir voru bekkjarfundir, farið í leynivinaleik og leiki sem styrkja vináttubönd innan kennslustofunnar. Nemendur skrifuðu einnig um vináttuna bæði í bundnu og óbundnu máli. Að lokum enduðu nemendur í 6. bekk vikuna á því að upplýsa hver leynivinurinn væri og færðu honum vöfflu.
Sigurjón Guðjónsson nemandi í 7. A.R. snart streng í hjörtum okkar allra með frumsömdu ljóði um vináttuna. Við fengum leyfi hjá honum til að birta ljóðið og vonum að þið njótið vel því þarna er greinilega upprennandi skáld á ferðinni. Við skulum öll hafa orð hans að leiðarljósi.

VINÁTTA

Unga stúlka, hvað myndir þú gera ef þú ættir engan vin?
Myndir þú leka niður, verða aum og lin?
Unga stúlka, hvað myndir þú gera ef það væri enginn sem þú gætir treyst?
Enginn sem stendur með þér, og saman vandamálin ykkar þið gætuð leyst?
Unga stúlka, manstu eftir vininum sem þú hafðir næstum svikið?
Ef þú hefðir gert það, heldur þú í alvöru að þú mundir fá eitthvað fyrir vikið?
Vissir þú að fyrir þig er þetta lítið, en fyrir þann sem þú svíkur, þá gæti þetta verið mikið?

Myndir þú klifra yfir hátt fjall- fyrir vin þinn?
Myndir þú synda yfir Svartahafið ef þú heyrðir kall- frá vini þínum?
Myndir þú hlaupa yfir heiminn-
Svífa í gegnum geiminn-
Fyrir vin þinn?

Ekki vanmeta þennan kraft-
Hugsaðu um allar góðu stundirnar sem þið gætuð haft-
Ekki svíkja vin þinn fyrir pening eða dót-
Því vináttan stingur niður einni, stórri, rót.
Ef þú missir góðan vin, þá er peningur engin bót.

Hvernig heldur þú að fugli líði þegar hann flýgur fyrst?
Hvernig heldur þú að feitum krakka líði þegar hann fær aftur sína matarlyst?
Þannig lætur góður vinur manni líða.

Sigurjón Guðjónsson 24. janúar ’07 – 7. AR, Hofsstaðaskóli.

 


Vinakeðja umhverfis Hofsstaðaskóla
Allir nemendur og starfsmenn Hofsstaðaskóla byrjuðu forvarnarvikuna gegn einelti á táknrænan hátt strax á mánudagsmorgni með því að mynda vinakveðju kringum skólann. Nemendur í 5. - 7. bekk fengu úthlutað nafni á nemanda í 1. - 4. bekk sem þeir áttu að sækja, fylgja út og gera að sínum skólavini. Hópurinn kom saman fyrir utan skólann og byrjaði að mynda vinakeðjuna. Myndun hennar tókst mjög vel. Þegar keðjan var orðin samfelld var skólabjöllunni hringt og allir gengu einn hring. Að lokum fylgdu eldri skólavinir þeim yngri aftur til kennslustofunnar og kvöddu. Framundan er annasöm vika með áherslu á vináttu.

Forvarnir gegn einelti
Vikuna 22. - 26. janúar verður, í grunnskólum Garðabæjar, lögð sérstök áhersla á verkefni sem tengjast forvörnum gegn einelti.   Markmiðið er að fjalla um jákvæð samskipti og vinna með viðhorf skólasamfélagsins. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni tengd viðfangsefninu og verða þau kynnt sérstaklega í hverjum skóla.
Foreldrum verður afhentur nýr upplýsingabæklingur í foreldraviðtölum sem fram fara í skólanum mánudaginn
29. janúar. Í bæklingnum eru upplýsingar um hvað einelti er, ráð til foreldra og viðbrögð skólanna við einelti.
Það er samstarfshópur skólanna „Gegn einelti í Garðabæ“ sem lét hanna og gefa út bæklinginn og veggspjöld sem minna á ógnir eineltis. Hönnuður veggspjaldanna er foreldri í Garðabæ, Sveinbjörg Jónsdóttir.

 

Breyting á starfstíma Tómstundaheimilis í vetrarleyfi
Vikuna 12. - 16. febrúar er vetrarleyfi í grunnskólum Garðabæjar. Þessa viku fellur öll kennsla niður í Hofsstaðaskóla. Í reglum um tómstundaheimili í Garðabæ segir: „Í jóla- og páska- og vetrarfríi eru tómstundaheimilin opin allan daginn á virkum dögum. Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá.“
Greiða þarf krónur 249,- fyrir hverja skráða klukkustund.Boðið er upp á dvöl frá kl: 8:00 - 17:00.
>>Nánari upplýsingar og skráningarblað

Dagur stærðfræðinnar
Flötur, samtök stærðfræðikennara minna á dag stærðfræðinnar fyrsta föstudag í febrúar. Dag stærðfræðinnar ber að þessu sinni upp á föstudaginn 2. febrúar. Markmið með degi stærðfræðinnar er tvíþætt, að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar samfélaginu, einnig að nemendur komi auga á möguleika stærðfræðinnar og sjái hana í víðara samhengi.
Flötur stendur fyrir þrautakeppni á nýrri vefsíðu sinni http://flotur.ismennt.is þar sem birtar eru bæði þrautir og stærðfræðiverkefni. Bekkir eru hvattir til að senda inn lausnir og dregið verður úr réttum lausnum og verðlaun send til viðkomandi bekkjar.

Margrét Harðardóttir nýr skólastjóri Hofsstaðaskóla heilsar upp á nemendur 5. janúar

Kveðjustund skólastjóra
Hilmar Ingólfsson skólastjóri og Sigurlín Sveinbjarnardóttir aðstoðarskólastjóri láta af störfum við Hofsstaðaskóla nú um áramótin.
Hilmar hefur verið skólastjóri frá árinu 1980 að undanskildum tveim vetrum sem hann fór í framhaldsnám.
Sigurlín hefur verið aðstoðarskólastjóri í fjögur ár og sinnti skólastjórastarfinu í 1/2 ár í forföllum skólastjóra.
Hún hefur nú ákveðið að snúa sér að öðrum verkefnum.

Starfsfólk skólans óskar þeim gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári
um leið og þeim er þakkað ánægjulegt samstarf liðinna ára.

 

Nýtt fréttabréf
Sameiginlegt fréttabréf Hofsstaðaskóla, foreldrafélags og foreldraráðs er komið út. Því var dreift í tölvupósti til allra aðstandenda með skráð netfang hjá skólanum. Einnig voru kennarar beðnir að koma fréttabréfinu til þeirra sem ekki eru í tölvupóstsambandi. Mögulegt er að nálgast fréttabréfið hér.

Glæsilegar niðurstöður í samræmdum könnunarprófum haustið 2006
Það ríkir mikil gleði hjá okkur í Hofsstaðaskóla vegna frábærs árangurs nemenda okkar í samræmdum könnunarprófum í 4. og 7. bekk. Það sýnir sig enn og aftur að áhersla skólans á fjölbreytta kennsluhætti og kraftmikinn skólabrag skilar frábærum árangri. Hér birtast niðurstöður samanborið við Suðvesturkjördæmi og landið allt:

 

 

Stærðfræði

Íslenska

4. bekkur    
Hofsstaðaskóli 6,9 7,2
Suðvesturkjördæmi 6,8 6,7
Landið allt 6,7 6,7
     
7. bekkur    
Hofsstaðaskóli 8,2 7,5
Suðvesturkjördæmi 7,5 7,0
Landið allt 7,3 7,0

 

Haust 2006

Starfsfólk Hofsstaðaskóla óskar nemendum og fjölskyldum þeirra
gleðilegra jóla  og farsæls komandi árs.
Þökkum samstarfið á liðnu ári.

>>Myndir jólaskemmtun yngri I
>>Myndir jólaskemmtun yngri II
>>Myndir jólaskemmtun eldri I
>>Myndir jólaskemmtun eldri II

Jólaskemmtanir og stofujól
Stofujól verða þriðjudaginn 19. desember. Það er jafnframt síðasti kennsludagurinn fyrir jól. Þann dag er kennt samkvæmt stundaskrá.
Jólaskemmtanir verða miðvikudaginn 20. desember
1., 2., 3. og 4. bekkur mæta kl: 10:30-12:30
5., 6. og 7. bekkur mæta kl: 13:00-15:00
Jólaleyfi hefst að lokinni jólaskemmtun

Tómstundaheimilið er opið 20. desember frá kl: 12:00-17:00. Það er einnig opið alla virka daga í jólaleyfinu frá kl: 8:00-17:00. Bréf vegna skráningar var sent foreldrum og bar að skila því fyrir 7. desember.

Skipulag skólastarfs í desember
Hér má nálgast skipulag skólastarfs í desember.

Laufabrauðsbakstur
Foreldrafélag skólans stóð fyrir laufabrauðsútskurði og steikingu í skólanum laugardaginn 25. nóvember. Um árlegan atburð er að ræða, ávallt síðasta laugardaginn í nóvembermánuði. Framkvæmdin er með þeim hætti að nemendum, ásamt fjölskyldum, er boðið að koma í skólann og skera út laufabrauð, sem síðan er steikt í heimilisfræðistofu skólans. Laufabrauðið er til sölu á staðnum.
>>Myndir

Morgunkaffi á aðventunni
Föstudaginn 15. desember buðu nemendur í 1. og 3. bekkjum foreldrum sínum til samverustundar hér í skólanum. Boðið var upp á smákökur, kaffi og djús. Einhverjir föndruðu og farið var í leiki. Samverustundin var fjölmenn og heppnaðist hún mjög vel. Forkunnarfagurt jólatré í stofunni hjá 1. H.Ó. vakti athygli bæði nemenda og gesta. Helga Óskarsdóttir kennari föndraði jólatréð og naut dyggrar aðstoðar nemenda við skreytingu.
>>Morgunkaffi 1. bekkur
>>Morgunkaffi 3. bekkur
>>Jólatré 1. H.Ó.

Fjölskylduguðsþjónusta í Vídalínskirkju
Mæting var góð í fjölskylduguðsþjónustuna sem fram fór í Vídalínskirkju sunnudaginn 10. desember. Séra Hans Guðberg Alfreðsson leiddi athöfnina en nemendur Hofsstaðaskóla tóku þátt í dagskránni. Hildur Jóhannesdóttir og Unnur Þorgeirsdóttir sáu um að aðstoða nemendur við undirbúning og stjórnuðu skólakórunum. Við getum verið stolt af nemendum því þeir stóðu sig mjög vel og voru skólanum og fjölskyldu sinni til mikils sóma.
>>Myndasýning
Fullveldisdagurinn
Nemendur og starfsfólk skólans kom saman á sal skólans föstudaginn 1. desember. Nemendur í 7. bekkjum skólans sáu um fræðslu og skemmtun. Krakkarnir í 7. A.R. fóru yfir sögulega atburði í tengslum við fullveldisdaginn, 7. L.K. rappaði lag og sýnt var myndband sem 7. M.Á. tók í heimsókn sinni í Alþingi. Þar tóku þau m.a. viðtöl við þingmenn.
>>Myndir
Góð heimsókn úr Flataskóla
Nemendur í 1. bekkjum Flataskóla heimsóttu 1. bekki Hofsstaðaskóla mánudaginn 4. desember. Krakkarnir tóku lagið saman og fengu sér morgunkaffi.
>>Myndir  
Þemadögum lokið með glæsilegri sýningu
Þemadögum í Hofsstaðaskóla lauk formlega með skemmtun á sal föstudaginn 24. nóvember. Þá komu saman allir nemendur og starfsmenn skólans til að fylgjast með geimleikriti sem leiklistahópurinn setti á svið undir dyggri stjórn Hildar Jóhannesdóttur. Sýnt var stutt tónlistarmyndband með nemendum 3. bekkja skólans. Þeir sungu lag um reikistjörnurnar af mikilli innlifun. Að lokum fengu gestir að njóta örfárra myndasýninga sem fjölmiðlahópurinn útbjó á þemadögum. Þessar myndasýningar getið þið nú nálgast hér á vefnum okkar.
Við hvetjum foreldra að koma í skólann til að líta á afrakstur þemadaga sem er á göngum skólans.

Líf og fjör á þemadögum
Þemadagar standa yfir í Hofsstaðaskóla vikuna 20.-24. nóvember. Viðfangsefnið að þessu sinni er himingeimurinn. Þemavinna er árlegur viðburður í skólanum en þá er öllum nemendum skipt upp í fjölmarga hópa sem hver um sig vinnur verkefni tengt viðfangsefninu. Mikil áhersla er lögð á list- og verkgreinar þ.e. að gefa nemendum tækifæri til að kynnast mismunandi vinnubrögðum og ólíku efni.
Mikill undirbúningur liggur að baki þemadögum sem þessum. Skipuð er sérstök þemastjórn sem sér um heildarskipulagið en allt starfsfólk skólans tekur þátt í verkefninu. Þemastjórnina að þessu sinni skipuðu þær Anna Magna Harðardóttir, Bryndís Svavarsdóttir og Ragnheiður Stephensen.

Kennarar tóku sérstakan undirbúningsdag laugardaginn 4. nóvember. Þá kom Helgi Grímsson, höfundur Auðvitað bókanna, og fræddi kennara um himingeiminn. Kennarar fóru einnig í Stjörnuverið þann dag til að kynna sér það sem nemendur fengju að njóta í þemavikunni.
Góðir gestir heimsóttu einnig skólann. Magnús Skarphéðinsson formaður samtaka áhugamanna um fljúgandi furðuhluti kom og fræddi nemendur um geimverur og fleira áhugavert.
Sérstakur fjölmiðlahópur er starfandi á þemadögum. Hann er skipaður nemendum úr 6. og 7. bekkjum skólans. Fjölmiðlahópurinn sér um að taka ljósmyndir og myndbönd. Hlutverk hans er einnig að miðla fréttum og myndefni til nemenda, aðstandenda og fjölmiðla.

Þemadagar í Hofsstaðaskóla vikuna 21. - 24. nóvember
Vikuna 21. - 24. nóvember verða þemadagar í Hofsstaðaskóla. Viðfangsefnið verður himingeimurinn. Við þökkum öllum þeim sem sent hafa okkur alls konar efnivið til að nota á þemadögunum.
Nemendur fá sérstaka fræðslu um himingeiminn vikuna 13. - 17. nóvember. Hápunktur þeirrar fræðslu er heimsókn í Stjörnuverið sem staðsett verður í matsal skólans föstudaginn 17. nóvember, mánudaginn 20. nóvember og þriðjudaginn 21. nóvember.
Stjörnuverið er færanlegt kennsluumhverfi eða sýndarheimur þar sem nemendur sitja inni í kúlulaga hvelfingu og sérstakt sýningartæki varpar upp mynd af stjörnuhimninum. Þar fræðast nemendur um stjörnuhimininn og sólkerfið. Smellið hér er þið hafið áhuga á að fræðast enn frekar um þemadagana.

Hrekkjavökudansleikur 7. bekkja
Hrekkjavökuhátíð 7. bekkja Hofsstaðaskóla var haldin fimmtudagskvöldið 2. nóvember s.l. Hátíðin tókst í alla staði frábærlega vel og skemmtu allir sér konunglega. Diskótekið Dísa sá um dansfjörið og krakkarnir sáu sjálfir, með hjálp foreldra, um að gera veisluborðið sem girnilegast.
Hugmyndin að þessari hátíð er fengin úr enskukennslu skólans en þar eru kynntar helstu hátíðir í enskumælandi löndum. Krakkarnir sáu sjálfir um að útbúa skreytingar og var salurinn, alrýmið og inngangurinn skreyttur með allskyns ófreskjum og draugalegum myndum.
Ákveðið var að bjóða 7. bekkjum Flataskóla og Sjálandsskóla í teitið og hrista þannig saman hópinn sem hittist í Garðaskóla næsta vetur. Hópurinn náði mjög vel saman og dönsuðu og trölluðu þannig að ómögulegt hefði verið fyrir ókunnuga að sjá hver var úr hvaða skóla.
>>Myndir

Skemmtun á sal
Nemendur í 5. - 7. bekk komu saman á sal föstudaginn 3. nóvember. Að þessu sinni sáu nemendur í 6. M.G. um skemmtiatriðin. Á boðstólum voru: leikritið Greindavísitalan, dansþátturinn Svo þú hélst þú kynnir að dansa auk nokkurra leikja. Lærisveinar Maríönnu í 6. M.G. stóðu sig vel og má því segja að allir hafi haldið í helgarfríið með bros á vör.
>>Myndir

Fundur um einelti fyrir nemendur og foreldra
Þriðjudaginn 7. nóvember mun Stefán Karl Stefánsson leikari og stofnandi Regnbogabarna vera með fyrirlestur um einelti fyrir nemendur í öllum grunnskólum landsins. Fyrirlesturinn verður sýndur um morguninn fyrir nemendur en hann er sendur frá Los Angeles þar sem Stefán Karl býr.
Fyrirlesturinn tekur 35 mínútur og verður hann á sal skólans. Fyrirhugað er að tveir árgangar komi saman í einu til að hlýða á.
Um kvöldið er foreldrum boðið á fyrirlestur. Fundurinn fyrir foreldra hefst kl: 20:00 og stendur til 22:00. Þar mun Stefán Karl ræða við foreldra um einelti og ofbeldi meðal barna. Ábyrgð heimila og skóla og hlutverk uppalenda almennt. Miðaverð um kvöldið er krónur 1000 og rennur hluti þess til Regnbogabarna.

Dansleikur hjá 7. bekk
Fimmtudaginn 2. nóvember ætla nemendur í 7. bekkjum Hofsstaðaskóla og Flataskóla að koma saman á dansleik. Þemað er hrekkjavaka (Halloween). Allir mæta í búningum og skemmta sér og öðrum. Nemendur í 7. bekkjum skólans hafa unnið hörðum höndum við undirbúning og meðal annars verið að föndra skraut.
>>Myndir

Skemmtun á sal
Föstudaginn 20. október komu nemendur skólans saman á sal. Nemendur í 5. Ó.P. sáu um skemmtiatriðin að þessu sinni. Einnig var flutt frumsamin tónlist eftir nemendur úr tónmenntavali í 6. bekk. Að lokum voru veittar viðurkenningar til þeirra bekkja sem þóttu skara fram úr í umgengni.
Davíð Halldórsson úr 7. L.K. sá um myndatöku í salnum. Lítið endilega á myndirnar.
>>Myndir

Um Norræna skólahlaupið 2006
Norræna skólahlaupið fer fram á öllum Norðurlöndum á tímabilinu 1. október – 1. desember.  Þetta verður í
22. skiptið sem við tökum þátt í þessu samnorræna hlaupi og höfum við staðið okkur mjög vel í samanburði við frændþjóðir okkar, þar sem að allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hafa hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.
Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til að þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan.
Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri, og heildarúrslit verða birt í fjölmiðlum og send skólum landsins.
Við munum að sjálfsögðu taka og birta myndir hér á vefnum að hlaupinu loknu.

Kennaranemar
Við bjóðum kennaranema velkomna í skólann til okkar. Hjá okkur eru nú staddir kennaranemar í 1. H.Ó. og
1. G.G. Þeir munu dvelja í 5 vikur. Einnig eru kennaranemar í tónmennt en þeir munu njóta leiðsagnar Unnar Þorgeirsdóttur tónmenntakennara. Við smelltum nokkrum myndum af nemendum og kennaranemunum í kennslustofunni.
>>Myndir

Skákæfingar
Skákæfingar fyrir krakka á miðvikudögum - Æfingar byrja 27. september
Taflfélag Garðabæjar er með vikulegar skákæfingar fyrir krakka á miðvikudögum kl. 16:00 í stofu 209 í Flataskóla (gengið inn frá Vífilstaðavegi.) Æfingum lýkur um kl. 17:30.
Allir krakkar í Garðabæ velkomnir, eina skilyrðið er að kunna mannganginn.
Æfingagjöld eru aðeins 1.500 krónur fyrir allan veturinn.
Kennari er Þorvarður F. Ólafsson skákmaður, en hann er reyndur skákkennari bæði í Garðabæ og Hafnarfirði.
>>sjá auglýsingu


Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
Laugardaginn 4. nóvember fór fram í Ráðhúsi Reykjavíkur verðlaunaafhending í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda. Þrír nemendur úr Hofsstaðaskóla komust í úrslit keppninnar. Ólafur Jón Ólason nemandi í 7. A.M.H. skólaárið
2005-2006  hlaut fyrstu verðlaun í flokki slysavarna með hugmynd sinni að straujárni með skynjara. Ólafur vann að hugmynd sinni í nýsköpun hjá Sædísi Arndal síðastliðið skólaár. Það var forseti Íslands Herra Ólafur Ragnar Grímsson sem afhenti verðlaunin.
Sýningin stóð aðeins einn dag í Ráðshúsinu en hægt er að skoða hana á vef keppninnar: www.nkg.is
 

Norræna skólahlaupið
Norræna skólahlaupið fór fram í Hofsstaðaskóla föstudaginn 3. nóvember. Hlaupið átti upphaflega að fara fram síðastliðinn föstudag en var frestað vegna veðurs. Nemendur stóðu sig vel og sumir létu sig ekki muna um að hlaupa alls sex hringi. Þess má geta að hlaupahringurinn var 2,5 kílómetrar.
>>Myndir 1. - 4. bekkur
>>Myndir 5. - 7. bekkur I
>>Myndir 5. - 7. bekkur II

Tónlist fyrir alla
Mánudaginn 30. október voru tónleikar hér í skólanum á vegum "Tónlist fyrir alla". Diddú og Anna Guðný skemmtu nemendum með söng og hljóðfæraleik. Tónleikarnir fóru fram í sal skólans. Yngri nemendurnir mættu strax kl: 8:40 en þeir eldri kl: 9:30.
>>Myndir yngri
>>Myndir eldri

>>Örlítið sýnishorn (myndband).
 
Nýsköpunarkeppni grunnskólabarna
Þrír nemendur úr Hofsstaðaskóla komust í úrslit í nýsköpunarkeppni grunnskólabarna. Í framhaldinu var þeim boðið að taka þátt í vinnusmiðju í Foldaskóla sem stóð yfir dagana 21. og 22. október til að vinna betur að hugmynd sinni. Viðurkenningar verða veittar 4. nóvember. Nemendurnir sem komust í úrslit voru: Nína Björk 7. A.R., Nína Ingólfsdóttir 6. M.G. og Ólafur Jón sem nú er nemandi í Garðaskóla. Við óskum þeim innilega til hamingju með þessar frábæru hugmyndir.


Nína B. Arnarsdóttir 7. A.R.


Nína Ingólfsdóttir 6. M.G.


Ólafur Jón Ólafsson

Hreinsunarstörf
Nemendur í 4. G.P. stóðu sig vel við hreinsunarstörf á skólalóðinni. Nemendur skólans skiptast á að fara um skólalóðina og nánasta umhverfi og hreinsa til undir dyggri stjórn umsjónarkennara. Þau hafa áður fengið fræðslu um hætturnar sem ber að varast og fá öll gúmmíhanska til afnota.  
Smíði
Nemendur í 4. bekk teikna og saga út fugl eftir eigin hugmynd. Þegar verkinu var lokið var ákveðið að stilla þeim upp í góða veðrinu og smella af þeim mynd. Glæsileg útkoma.

Kurteisi og agi
Anna Rós Bergdóttir umsjónarkennari í 7. A.R. hefur verið skipuð sem fagstjóri í kurteisi og aga. Fagstjóri er í forystu í málefnum sem varða umgengni og aga innan skólans. Hann fylgist með og kemur með tillögur að úrbótum varðandi umgengni og aga.
>>sjá nánar

Hjólreiðar
Hjólreiðar hafa verið leyfðar til og frá skóla í ágúst og september og aftur í apríl og maí. Aðallega er það myrkrið sem hefur ráðið þessum tímasetningum. Við höfum litið svo á að það væri stuðningur við heimilin að hafa samræmdar reglur hvað þetta varðar. En nú viljum við venda okkar kvæði í kross og tilkynna foreldrum og forráðamönnum nemenda Hofsstaðaskóla það formlega að við hættum afskiptasemi varðandi hjólreiðar yfir vetrarmánuðina og treystum foreldrum til að meta hvenær óhætt sé að hjóla til og frá skóla. Auðvitað verður þá að fylgjast vel með að hjólið sé í lagi, ljós og endurskinsmerki á sínum stað og barnið með hjálminn sinn enda viljum við í Hofsstaðaskóla ekki sjá börn hjóla án hjálms. Hjólreiðar lítilla barna eru þó varla æskilegar yfir háveturinn..

 

Leiðbeiningar frá Iðjuþjálfum
Iðjuþjálfar í Iðjuþjálfafélagi Íslands komu skólann miðvikudaginn 27. september. Þeir heimsóttu nokkra bekki  og leiðbeindu nemendum varðandi líkamsstöðu og skólastöskur. Meðal þess sem iðjuþjálfarnir fóru yfir var hvernig stilla ætti skólatöskurnar, pakka og raða niður í þær. Að lokum voru töskurnar vigtaðar en þyngdin á þeim má að hámarki vera 15% af líkamsþyngd barnsins. Fyrir þá sem hafa áhuga þá er hægt að nálgast leiðbeiningar frá iðjuþjálfunum varðandi líkamsstöðu og skólatöskur hér
>>Skoða myndir

Smíði
Það er alltaf líf og fjör í smíðatímum. Nemendur í 7. bekk brugðu á leik með strengjabrúðu í smíði.

Smíði
Nemendur í 3.bekk eru sérstaklega kurteisir og góðir og mynduðu fallega röð fyrir smíðakennarann fyrir utan smíðastofuna. Allt til að gleðja kennarann.

Bæjarstjórinn heimsækir Hofsstaðaskóla
Gunnar Einarsson bæjarstjóri í Garðabæ heimsótti Hofsstaðaskóla mánudaginn 25. september og heilsaði upp á nemendur og starfsfólk.


Vettvangsferð 6. bekkja
Vífilsstaðavatn - Gersemi Garðabæjar 
6. bekkingar hafa verið læra um lífríki Vífilsstaðavatns þ.e. í og við vatnið frá því að skólinn hófst í haust. Lokapunkturinn á því ferli var að fara í vettvangsferð að Vífilsstaðavatni. Hefð er fyrir því að nemendur hjóli þangað frá skólanum ásamt umsjónarkennara sínum. Þar vinna nemendur í hópum ýmis verkefni. Undir stjórn Bjarna Jónssonar vistfræðings veiddu nemendur fiska og söfnuðu sýnum úr vatninu og Vífilsstaðalæk. Einnig unnu nemendur verkefni undir stjórn kennara þar sem þeir skoðuðu jurtir, fuglalíf og ýmis örnefni í umhverfinu. Í skólanum greindu nemendur sýnin og krufðu fiskana og virtust nemendur mjög ánægðir og áhugasamir um verkefnið. Lítið á myndirnar frá Vífilsstaðavatni og frá úrvinnslunni í skólanum.

Tómstundaheimilið
Sigrún Eggertsdóttir hefur hætt störfum í Tómstundaheimilinu. Hún starfar nú sem kokkur á skuttogara sem gerður er út frá Reykjanesbæ. Ágústa Kjartansdóttir, sem starfað hefur um árabil í Tómstundaheimilinu, hefur tekið við starfi forstöðumanns.

Ritari á skrifstofu
Ludy Ólafsdóttir er ritari á skrifstofu skólans. Hún er ættuð frá Ólafsvík og vann þar m.a. hjá Landsbankanum og verkalýðsfélagi Ólafsvíkur. Eftir að hún flutti til Reykjavíkur vann hún hjá Pósti og síma og síðan við verslunarstörf.


Skólaliði
Siggeir Siggeirsson hefur hafið störf sem skólaliði. Siggeir er menntaður járnsmiður en vann síðustu 25 ár hjá fyrirtækinu Texta, þar til það hætti störfum. Siggeir býr í Lautarsmára í Kópavogi. Hann sýnir öðrum gott fordæmi og gengur til og frá vinnu.

Hjálmarnir bjarga
Að gefnu tilefni viljum við ítreka að nemendur eiga að vera með hjálma hvort heldur þeir koma á venjulegu reiðhjóli, hlaupahjóli eða línuskautum.
 

Alþjóðardagur kennara
Hæfir kennarar tryggja gæði menntunar (Quality Teachers for Quality Education) er yfirskrift Alþjóðadags kennara fimmtudaginn 5. október. UNESCO hafði forgöngu um að einn dagur á ári hverju yrði helgaður kennurum. Alþjóðadagur kennara er nú haldinn hátíðlegur í yfir 100 löndum.

Evrópski tungumáladagurinn
Þriðjudaginn 26. september var Evrópski tungumáladagurinn haldinn í fimmta sinn. Í tilefni af því af skemmtunin á sal tileinkuð þessum degi. Nemendur komu fram og kynntu verkefni sem þeir voru að vinna í tengslum við tungumálakennslu og fleira.
>>Myndir

Skólamáltíðir
Starfsfólk Matarlystar Atlanta sendi okkur bréf sem það vildi koma á framfæri við viðskiptavini sína. Smelltu hér til að nálgast bréfið.


Samstarf heimila og skóla
Miðvikudaginn 20. september var haldinn kynningarfundur fyrir bekkjarfulltrúa, stjórnir foreldrafélaga og foreldraráða grunnskóla Garðabæjar. Fundurinn fór fram í sal Hofsstaðaskóla og sóttu hann um 70 manns. Fyrirlesari var Helga Margrét Guðmundsdóttir frá Heimili og skóla. Helga Margrét fór yfir ávinning samstarfs milli heimila og skóla en eftir hlé var skipt í hópa þar sem farið var yfir hlutverk og skoðað hvernig staðið væri að málum í skólunum. Elín okkar Thorarensen tók þá að sér stjórnir foreldrafélaga og foreldraráða en Margrét bekkjarfulltrúana.
>>Myndir

>>Fyrirlestur Helgu Margrétar

Alþjóðlegi mjólkurdagurinn
Alþjóðlegi mjólkurdagurinn verður miðvikudaginn 27. september n.k. Það er stofnun Sameinuðu þjóðanna, FAO (Food and Agriculture Organization) sem hvetur til hátíðarhalda á þessum degi og á Íslandi er haldið upp á hann undir kjörorðunum “Holl mjólk og heilbrigðir krakkar”.  Af því tilefni mun markaðsnefnd mjólkuriðnaðarins bjóða öllum skólum sem taka þátt fría mjólk. Nemendur Hofsstaðaskóla fá fría mjólk þennan dag.

Kór
Við Hofsstaðaskóla er starfræktur kór í tveimur deildum, yngri kór fyrir nemendur í 3. og 4. bekk og eldri kór fyrir nemendur í 5.- 7. bekk. Kórarnir leggja áherslu á sönggleði, hreinan söng, keðjusöng og röddun. Jafnframt er unnið með sviðsframkomu og leiklist. Kórarnir koma fram opinberlega reglulega yfir veturinn. Æfingar eru tvisvar í viku á þriðjudögum kl. 16.00 og á föstudögum kl. 14:00.
Stjórnendur eru Unnur Þorgeirsdóttir og Hildur Jóhannesdóttir, tónmenntarkennarar.

Kórinn kemur fram í tilefni af 30 ára afmæli KB-banka
Hofsstaðaskólakórinn söng við opnun afmælishátíðarinnar nokkur vel valin lög. Kórinn hefur aðeins haft þrjár æfingar á þessu hausti og er strax kominn með 6 lög í farateskið, enda eru kórkrakkarnir mjög fljótir að læra bæði lög og texta.
>>Myndir

Innileikfimin er hafin
Nemendur eru minntir á að nú er innileikfimin hafin. Munið eftir að koma með íþróttafatnað og handklæði. Ef nemendur geta ekki verið með í kennslustundum vegna veikinda eða af öðrum orsökum verður að koma með skriflegt leyfi frá foreldrum / forráðamönnum. Einnig er hægt að hafa samband eða senda netpóst til íþróttakennara. Ekki er skylda fyrir yngstu nemendurna að fara í sturtu að kennslustund lokinni.

Með kveðju frá íþróttakennurum

Byggingarlist
Nokkrir nemendur í 6. bekk tóku sig til, hönnuðu og byggðu glæsilega höll. Eftir að
listaverkið var fullbyggt var smellt af því mynd. Það tók síðan stuttan tíma að rífa allt niður til grunna aftur.
Lundapysja í heimsókn
Mánudaginn 18. september fengu nemendur í 1., 2. og 3. bekk skemmtilega heimsókn. Þá kom til þeirra lítil lundapysja sem fannst í Vestmanneyjum. Hún ferðaðist með Herjólfi til lands. Pysjan vakti mikla athygli hjá nemendum sem flestir voru að sjá lundapysju í fyrsta skipti. Þess má geta að lundapysjan var skírð og hlaut hún nafnið Lalli lundapysja.
>>skoða myndir

 
Gleðjumst yfir góðum árangri
Stjörnustrákarnir urðu Íslandsmeistarar í d-liði 5.flokks karla eftir úrslitaleik við Víking í Fífunni. Staðan í hálfleik var 1-1 en Stjörnumenn réðu ferðinni í síðari hálfleik og sigruðu 3-1.
C-lið 5.flokks karla náði einnig frábærum árangri en liðið varð í 2.sæti Íslandsmótsins eftir 1-2 tap gegn Fylkismönnum á Gróttuvelli á Seltjarnarnesi.
A og b-lið 5.flokks varð í 3-4.sæti þannig að sumarið hjá flokknum hefur verið ævintýri líkast.
Til hamingju strákar!
Til hamingju með sigurinn!
Stúlkur úr 6. og 7. bekk í Hofsstaðaskóla urðu Íslandsmeistarar í knattspyrnu með 5. flokki Stjörnunnar. Unnu þær Aftureldingu í úrslitaleik. A-lið Stjörnunnar vann 1-0 en B-liðið 8-2. Glæsilegur árangur hjá stúlkunum. Til hamingju!
Ný leiktæki
Í skólabyrjun voru tekin í notkun ný leiktæki á skólalóðinni. Kastali, sambyggt leiktæki fyrir yngstu nemendurna og m.a. nýtísku snúningstæki fyrir þau eldri. Snúningstækið er vaktað í frímínútum af starfsmönnum skólans meðan nemendur eru að læra að nota það eins og til er ætlast. Í september koma rólur og fleiri tæki fyrir yngstu nemendurna. Fyrirhugað er að ljúka frágangi lóðarinnar næsta sumar.
>>skoða myndir

 
Nýtt eldhús
Þann 1. september var tekið í notkun nýtt eldhús fyrir nemendamötuneyti skólans en unnið hefur verið að framkvæmdum síðan í maí síðastliðinn. Þetta er glæsilegt eldhús með öllum búnaði. Einnig eru ný hitaborð, vagnar, diskar, hnífapör ofl. Ekki hefur unnist tími til að gera matsalinn fínann en það verður gert í vetur. Nemendur tóku vel þessum nýjungum. Nú eru tvær raðir, tveir starfsmenn skammta heita matnum, en nemendur fá sér sjálfir á diskana grænmeti og ávexti. Allt gekk þetta vel fyrir sig. Einnig fór mjólkuráskriftin vel af stað og stefnir í aukna mjólkurdrykkju þegar börnin finna hvað mjólkin er ísköld og góð.

Skólapeysur
Foreldrafélagið minnir á að á morgun laugardaginn 23. september er síðasti pöntunardagur á skólapeysum. Pöntun og mátun fer fram í verslun 66 N í Miðhrauni 11, Garðabæ.

l