|

Virðing og umhyggja
Ragný Þóra Guðjonsen formaður forvarnarnefndar
Garðabæjar kom færandi hendi á starfsmannfund í
Hofsstaðaskóla þriðjudaginn 6. maí sl. Forvarnarnefnd,
Íþrótta- og tómstundaráð, Skóla- og Leikskólanefnd
Garðabæjar færðu öllum starfsmönnum skólans bókina
„Virðing og umhyggja – ákall 21. aldar“ eftir Sigrúnu
Aðalbjarnardóttur að gjöf.
Vigdís Finnbogadóttir segir bókina „...vísa veginn í
uppeldi til sjálfsvirðingar sem er traustasti lykillinn
að því að bera virðingu fyrir öðrum...“
Útileikfimin að hefjast
Við minnum á að útileikfimin byrjar þriðjudaginn 20.
maí. Þá þurfa nemendur ekki að koma með íþróttaföt með
sér en það gott er að vera vel gallaður og með
strigaskó.
Vordagar
Á vordögum er mikið um að vera í skólanum svo sem
próf, ferðalög, útikennsla, vettvangsferðir, íþrótta- og
umferðadagur. Formlegt námsmat fer fram í öllum árgöngum
í maí og eru flest próf á skólatíma og hluti af
venjulegum skóladegi. Tímasetning þeirra er breytileg
milli bekkja og mun umsjónarkennari hvers bekkjar láta
nemendur vita um tímasetningu þeirra.
Sérstakir prófadagar hjá nemendum í 5. - 7. bekk eru 20.
-21. maí. Tvö próf eru hvorn daginn með stuttu hléi á
milli. Kennsla fellur niður þá daga og nemendur
fara heim að loknum prófum. Matur er fyrir þá sem eru í
áskrift kl. 10:50.Gott er að hafa með sér smávegis nesti
til að narta í á milli prófa t.d. djús og ávöxt.
Hér fyrir neðan má nálgast
atburðadagatöl og prófatöflur árganga
Kiwanishreyfingin kemur færandi hendi
Mánudaginn 5. maí komu félagar úr
Kiwanishreyfingunni færandi hendi. Þeir gáfu öllum
krökkum í
1. bekk þessa fínu hjólreiðahjálma sem allir eiga að
sjálfsögðu að nota þegar verið er að hjóla. Á myndinni
eru glaðir og ánægðir nemendur með nýju hjálmana sína.
Skólamyndataka
Myndataka verður í Hofsstaðaskóla í 1., 3. , 5. og 7.
bekk á þessu vori. Föstudaginn 9. maí verða teknar
myndir af nemendum í 5. og 7. bekk en þriðjudaginn 13.
maí í 1. og 3. bekk . Nemendur fengu auglýsingu með sér
heim mánudaginn 5. maí en að þessu sinni þarf að borga
fyrir myndatökuna áður en hún fer fram og einungis verða
teknar einstaklingsmyndir af þeim sem hafa borgað. Þeir
sem ætla að kaupa myndir eru vinsamlegast beðnir um að
fylla út skráningarblaðið í auglýsingunni og skila því
ásamt greiðslukvittun til umsjónakennara eigi síðar en
fimmtudaginn 8. maí hjá eldri og föstudaginn 9. maí hjá
yngri.
>>sjá nánar
Árlegt vímuvarnarhlaup Lionsklúbbsins
Eikar
Árlegt vímuvarnarhlaup Lionsklúbbsins Eikar fór fram
miðvikudaginn 30. apríl. Að venju voru það nemendur í 5.
bekk sem kepptust um að koma fyrst í mark. Boðhlaup er
táknrænt í sjálfu sér – börnin taka við boðskap og
hlaupa með hann til næsta barns sem tekur við keflinu
o.s.frv. Með hlaupinu er verið að vekja börnin til
umhugsunar og gera þau meðvituð um ábyrgð á eigin lífi,
velferð og hamingju.
Með Lionskonum í för eru ávallt GÓÐAR fyrirmyndir sem
ávarpa krakkana á undan hlaupinu. Að þessu sinni var það
Alma í hljómsveitinni Nylon sem talaði til krakkanna og
sagði þeim m.a. að það sé allt í lagi að segja NEI. Hún
sagði þeim frá hvernig hún hefur sniðgengið vímuefni og
hvatti þau til að þroska hæfileika sína og getu til að
móta eigin lífsstíl og stefnu.
>>Myndir I
>>Myndir II
Hrós dagsins-tveir framtakssamir
Jón Arnar í 3. R.S. og Bjartur í 4. G.T. tóku sig
til eftir Vímuvarnarhlaupið og söfnuðu saman öllum
hvatningaspjöldum og öðru rusli sem þeir sáu á
skólalóðinni. Þeir eiga bestu þakkir fyrir gott framtak
og góða fyrirmynd í skólanum.

Framtakssamir drengir Bjartur og Jón Arnar
Hreinsunarátak í Garðabæ
Nemendur í 2. og 6. bekk taka þátt í hreinsunarátaki
í Garðabæ. Sótt var um hvatningarstyrk til bæjarins og
eiga nemendur því von á glaðningi að verki loknu. Það
voru kraftmiklir nemendur í 2. G.G. og 6.B.V. sem hófu
hreinsunina á sólríkum mánudagsmorgni 28.apríl.
Þau byrjuðu á Arnarneslæk og svæðinu í kringum hann frá
Bæjarbraut að Reykjanesbraut. Krakkarnir tóku vel til
hendinni og voru mjög áhugasamir og duglegir við að
hreinsa umhverfið. Verkinu verður haldið áfram í vikunni
af öðrum nemendum í árgöngunum.
>>Myndir
Tónlist fyrir alla - Syngjandi skóli
Það komu góðir gestir í heimsókn og héldu tónleika
með nemendum Hofsstaðaskóla í tengslum við verkefnið
Tónlist fyrir alla - Syngjandi skóli. Tónlistarmennirnir
Pálmi Sigurhjartarson, Jón Rafnsson og Ásgeir Óskarsson náðu upp fínni söngstemningu með nemendum
og óhætt að segja að lagið Selfoss er...hafi vakið mesta
hrifningu.
>>Myndir
Eftir tónleikana barst okkur
eftirfarandi tölvupóstur:
Kærar
þakkir fyrir móttökurnar í morgun og skólinn fær
mikið hrós fyrir vasklegan og vel undirbúinn söng,
þetta var alveg sérlega skemmtileg heimsókn.
Jón
Rafnsson
Tónlist fyrir alla
Árshátíð 7. bekkinga
Glæsileg árshátíð 7. bekkinga var haldin í
Hofsstaðaskóla fimmtudaginn 17. apríl. Þema kvöldsins
var Hollywood og mættu nemendur, foreldrar og starfsmenn
í sínu fínasta. Umhverfið var fallega skreytt og gengu
gestir eftir rauðum dregli að skólanum.
Hátíðin hófst á hæfileikakeppni þar sem gestir nutu
frábærra skemmtiatriða. Það leikur enginn vafi á því að
í Hofsstaðaskóla leynast margar stjörnur framtíðarinnar.
Eftir verðlaunaafhendingu var boðið upp á hlaðborð með
mexíkönskum mat sem nemendur höfðu útbúið í
heimilisfræði. Um kl. 21 fóru foreldrar heim og þá tók
diskótekið Dísa við með dynjandi danstónlist til kl. 22.
Hér fyrir neðan má nálgast myndir frá undirbúningi
og árhátíð 7. bekkjar.
Ljósmyndari var Brynjar Ísak í 7. L.K.
Myndasafn árshátíðar 2008
>>Árshátíð- Undirbúningur 16. apríl
>>Árshátíð- Undirbúningur 16 apríl II
>>Árshátíð-Undirbúningur 17. apríl
>>Árshátíð-Undirbúningur 17. apríl II
>>Árshátíð I
>>Árshátíð II
>>Árshátíð III
Kór Hofsstaðaskóla setur söngleikinn
Grease á svið
Kór Hofsstaðaskóla gerði sér lítið fyrir og setti
upp söngleikinn Grease undir dyggri stjórn Unnar
tónmenntakennara. Þeim til aðstoðar var Jón Bjarni
tónmenntakennari. Söngleikurinn var sýndur á listadögum
bæði fyrir foreldra og nemendur eldri deildar skólans.
Frábær skemmtun og glæsileg frammistaða.
>>Myndir I
>>Myndir II
Við eigum Íslandsmeistara!
Hann Guðmundur Hafsteinn Hafsteinsson gerði sér
lítið fyrir sunnudaginn 13. apríl og sigraði tvöfalt
klifurmót í Klifurhúsinu þ.e. hann vann þetta tiltekna
mót og hlaut síðan Íslandsmeistaratitilinn úr
samanlögðum árangri. Guðmundur keppir í flokki 12 ára og
yngri drengja. Til hamingju Guðmundur!!
Listadagar
Dagana 9. - 12. apríl verða listadagar barna og
ungmenna haldnir í þriðja sinn í Garðabæ. Þemað að þessu
sinni er náttúran og umhverfið. Á listadögum verða ýmsar
uppákomur um allan bæ sem ungir listamenn hafa unni
hörðum höndum við að undirbúa. Það gefur vonandi
bæjarbúum innsýn í það gróskumikla og fjölbreytta
listastarf sem fram fer í skólum og stofnunum bæjarins.
Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og eru allir
bæjarbúar velkomnir hvort sem það er í stofnanir eða
skólana. Nálgast má dagskrá listadagana og nánari
upplýsingar á
vef Garðabæjar.
Markmið Hofsstaðaskóla á listadögum er að gefa sem
fjölbreyttasta mynd af sköpun og listum í daglegu starfi
nemenda. Áhersla er lögð á að sýna margvísleg skapandi
verkefni sem tengjast viðfangsefnum í námskrá,
leiðarljósi skólans, endurvinnslu og umhverfisvernd.
Nemendur koma reglulega saman á sal þar sem þeir æfa
framsögn og leiklist ásamt tónlist og dansi. Sýnishorn
af þeim verkefnum eru einnig sýnd á listadögum. Verið
hjartanlega velkomin í Hofsstaðaskóla.
>>Dagskrá Hofsstaðaskóla
>>Myndir frá opnunarhátíð í Hofsstaðaskóla
Tækjasjóðsnefnd foreldrafélags leitar
eftir fjárframlögum
Traust samstarf heimilis og skóla hefur verið einn
af hornsteinum Hofsstaðaskóla um árabil. Sú hefð hefur
skapast að foreldrar hafa gefið skólanum gjöf sem hugsuð
er til að styrkja skólastarfið í heild sinni. Í ár
stendur til að efla bókasafn skólans með veglegum
bókagjöfum. Foreldrar ætla að leita til fyrirtækja í
Garðabæ og foreldra barna eftir fjárframlögum. Þeir sem
hafa áhuga að leggja tækjasjóðsnefndinni lið og taka
þátt í gjöfinni geta lagt inn peninga á reikning
söfnunarinnar sem gefinn er upp hér fyrir neðan:
Númer reiknings: 0318-13-700566
kennitala: 480699-2469
Skóladagatal fyrir skólaárið 2008-2009
Hér er hægt að nálgast skóladagatalið fyrir skólaárið
2008-2009
|