|
Aðalsíða
|
Fundargerðir
|
Tenglar |
Upplýsingar frá foreldraráði
Ársskýrsla
2004-2005|
Ársskýrsla 2005-2006|Ársskýrsla
2006-2007
Foreldraráð
Hofsstaðaskóla

|
Foreldaráð starfa
samkvæmt 16. grein laga um grunnskóla 66/1995
en þar
segir meðal annars: „Foreldraráð fjalla um og gefur umsögn til
skólans og skólanefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem
varða skólahaldið og fylgist með að áætlanir séu kynntar foreldrum
svo og með framkvæmd þeirra. Skólastjóri starfar með foreldraráði
og veitir því upplýsingar um starfið í skólanum.“
Foreldraráðið fylgist einnig með áætlunum bæjarins um skólahald.
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar hefur á grundvelli þessarar
lagagreinar sett foreldraráðum
erindisbréf
auk þess að foreldraráð Hofsstaðaskóla hefur sett sér starfsreglur.
Skipan
foreldraráðs
Í
foreldraráði
Hofsstaðaskóla sitja þrír aðalfulltrúar og þrír varafulltrúar.
Kosning í foreldraráð fer fram að vori á aðalfundi
foreldrafélagsins. Kosið er til tveggja ára í senn og er reynt að
gæta þess að allir kjörnir fulltrúar hætti ekki á sama tíma.
Foreldraráð Hofsstaðaskóla veturinn 2007-2008:
|
Svava Garðarsdóttir, formaður |
|
svavagard@gmail.com |
|
Vera Guðmundsdóttir, varaformaður |
|
|
|
Margrét Gunnlaugsdóttir,
ritari |
|
|
| Perla Kolka
Leifsdóttir, 1. varamaður |
|
|
| Klara Hrönn
Sigurðardóttir,
2
varamaður |
|
|
| Steinunn
Bergmann, 3. varamaður |
|
|
|
Hægt er að senda póst á alla meðlimi
foreldraráðs á netfangið:
foreldrarad@hofsstadaskoli.is |
Starfsemi
Foreldraráð Hofsstaðaskóla fundar
þriðja þriðjudag í mánuði og oftar ef þurfa þykir.
Að
minnsta kosti tvisvar á ári eru haldnir sameiginlegir fundir með
kennararáði og foreldrafélagi. Svæðaráð foreldrafélaga og
foreldraráða í grunnskólum Garðabæjar fundar mánaðarlega yfir
veturinn. Í svæðaráðinu sitja formenn foreldrafélaganna og
foreldraráðanna ásamt fulltrúa foreldra í skólanefnd og ræða um
sameiginleg hagsmunamál. Svæðaráð skipar fulltrúa í skólanefnd til
2ja ára í senn, Jens G. Einarsson foreldraráði Flataskóla er
fulltrúi foreldra í skólanefnd næstu tvo vetur. Fundargerðir og
starfsreglur svæðaráðs er að finna á heimasíðu Garðabæjar.
Samstarf við foreldra
Foreldrar er hvattir til að kom
athugsemdum og skilaboðum til nefndarmanna. Hafa ber í huga að
samkvæmt starfsreglum skal foreldraráð einbeita sér að skoða stefnu
skólans og almennt skipulag fremur en atriði er snerta einstaka
nemendur.
|