Þróunarverkefni


Skólaárið 2007-2008

Kennarar í Hofsstaðaskóla vinna að tveimur þróunarverkefnum í vetur. Annars vegar er um að ræða verkefni um fjölbreytta kennsluhætti í
1. og 2. bekk og samstarf við leikskólann Hæðarból. Kennari í 1. bekk og kennari í 2. bekk leiða starfið.  Ráðgjafi verkefnisins er Gunnhildur Óskarsdóttir dósent við Kennaraháskóla Íslands. Meginmarkmið verkefnisins er að efla fjölbreytt og sveigjanlegt skólastarf með það í huga að auka veg fjölbreyttra kennslu- og námsmatsaðferða.

Enska er nú kennd í öllum árgöngum í Hofsstaðaskóla. Um er að ræða þróunarverkefni sem fagstjóri í ensku fer fyrir. Flestir umsjónarkennarar á yngri stigi kenna ensku í sínum bekk. Markmiðið er m.a. svara kröfum samfélagsins um að hefja tungumálakennslu snemma á skólagöngunni. Ráðgjafi verkefnisins er Samuel Lefever lektor við Kennaraháskóla Íslands.
Þróunarverkefnin eru bæði styrkt af menntamálaráðuneytinu.
Hofsstaðaskóli fékk einnig styrk frá menntamálaráðneytinu til að halda námskeið um einstaklingsmiðað skólastarf skólaárið 2007-2008 í samvinnu við Símenntun, rannsókn og ráðgjöf (SRR) hjá Kennaraháskóla Íslands.